Hönnun gatnamóta ákveðin eftir íbúafund
Boðað verður til íbúafundar vegna hönnunar gatnamóta Njarðarbrautar, Fitjabakka og Bergáss í Reykjanesbæ en hönnun hringtorgs við Njarðarbraut og Fitjabakka hefur tvívegis verið samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði. Meirihluti bæjarstjórnar hefur samþykkt að fresta ákvörðun í málinu þar til íbúafundur hefur farið fram.
Á fundi ráðsins 9. maí 2025 kom fram að útfærsla A (hringtorg við Njarðarbraut og Fitjabakka) er talin vænlegust með tilliti til umferðarflæðis, öryggis og hagkvæmni. Valkostur B (hringtorg við Bergás) skili ekki sama ávinningi og hefur neikvæð áhrif á útivistarsvæði sem nýtur hverfisverndar.
„Um er að ræða mikilvæga samgöngubót – stærsta hringtorg innanbæjar sem mun styðja við stækkun Njarðarbrautar og aukna umferð vegna flutnings stórra fyrirtækja á svæðið. Framkvæmdin er tilbúin og getur hafist strax í sumar. Hringtorgið mun létta á umferð um Njarðarbraut og Vallarás og bæta aðgengi að Fitjum. Auk þess mun það draga úr hættu á árekstrum, þar sem nú þurfa bílar að stoppa á aðalgötunni til að beygja, m.a. inn að ÓB. Meirihluti bæjarstjórnar vill undirstrika að í öllum framkvæmdum er lögð áhersla á umferðaröryggi og hagkvæma nýtingu fjármuna, í samræmi við ráðgjöf sérfræðinga Eflu og þróun ört stækkandi sveitarfélags.
Ljóst er að málið nýtur stuðnings allra fulltrúa í skipulagsráði. Áhyggjur íbúa Ásahverfis hafa þó komið fram og verið settar fram í undirskriftasöfnun. Meirihlutinn leggur því til að boðað verði til íbúafundar þar sem farið verður yfir fyrirhugaða framkvæmd, önnur áform á svæðinu og tryggingu öryggis gangandi og hjólandi vegfarenda.Meirihlutinn leggur því til að afgreiðslu verði frestað og tekið aftur fyrir í bæjarstjórn þann 3. júní.“
Undir bókunina rita Guðný Birna Guðmundsdóttir, Sverrir Bergmann Magnússon og Aðalheiður Hilmarsdóttir bæjarfulltrúar Samfylkingar, Bjarni Páll Tryggvason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Róbert Jóhann Guðmundsson bæjarfulltrúar Framsóknar og Valgerður Björk Pálsdóttir bæjarfulltrúi Beinnar leiðar.
Til máls tók Guðbergur Reynisson og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks: „Sjálfstæðisflokkurinn fagnar fyrirhuguðum íbúafundi með íbúum Ásahverfis, og vonar að hlustað verði á umkvartanir íbúa og fyrirtækjaeigenda á svæðinu.“