Tónlistarskóli RNB vortónleika
Tónlistarskóli RNB vortónleika

Fréttir

Hollvinir geta gist í Grindavík yfir sumartímann
Mánudagur 19. maí 2025 kl. 10:41

Hollvinir geta gist í Grindavík yfir sumartímann

Gisting í eignum Þórkötlu er hugsuð til sumardvalar en ekki til fastrar búsetu

Frá og með 28. maí munu þeir sem gert hafa hollvinasamning um sínar gömlu eignir í Grindavík einnig geta gist í þeim. Um er að ræða tímabundið verkefni til reynslu í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórkötlu.

Markmiðið með verkefninu er að ýta undir að íbúar haldi tengslum við bæinn og þar með auka líkurnar á að fólk flytji aftur til Grindavíkur þegar það er talið öruggt. Heimildin er hugsuð til sumardvalar en ekki til fastrar búsetu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Frá því Þórkatla hóf að bjóða upp á hollvinasamninga hefur félagið fundið fyrir miklum áhuga hollvina á því að gista í eignunum. Sá áhugi hefur aukist jafnt og þétt en hingað til hefur ekki verið talið forsvaranlegt að leyfa gistingu. Í ljósi aðstæðna og þróunar í bænum hefur nú hins vegar verið tekin ákvörðun um að heimila hollvinum til reynslu að gista í eignunum yfir sumartímann, frá lok maí til loka september 2025.

Heimildin byggir á því að staðsetning, ástand og staða brunavarna sé með þeim hætti að óhætt sé fyrir fólk að dvelja í eigninni næturlangt. Innheimt verður umsýslugjald þegar samningur um gistingu í sumar er undirritaður.

Vonir standa til að hægt verði að endurvekja blómlega byggð í Grindavík sem fyrst. Grindvíkingar vilja snúa heim, ýmist sem fyrst eða þegar dregið hefur úr áhættu. Það er mat Þórkötlu að fyrsta skrefið í þá átt sé að heimila gistingu hollvina, en síðar þegar aðstæður leyfa mun félagið leigja og selja fasteignir til Grindvíkinga.

Þórkatla hefur gengið frá kaupum á 943 eignum í Grindavík, tekið við 913 eignum og gengið frá afsali fyrir 904 eign í Grindavík. Heildarfjárfesting félagsins í þeim 943 eignum sem gengið hefur verið frá til þessa er 71,6 milljarðar króna. Þar af eru kaupsamnings- og afsalsgreiðslur um 50 ma.kr. og yfirtekin húsnæðislán um 21,6 ma.kr.

Frestur einstaklinga til að sækja um sölu á íbúðarhúsnæði í Grindavík rann út 31. mars sl., en lög um framlengingu á frestinum til 30. júní 2025 eru í vinnslu hjá Alþingi sem stendur.

Hægt er að sækja um hollvinasamning á heimasíðu Þórkötlu (www.torkatla.is). Allir hollvinir fá svo sent boð um að bæta gistiheimild við hollvinasamning.