Fréttir

Hlynur verður aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla
Hlynur Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla.
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 11. júlí 2019 kl. 08:23

Hlynur verður aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla

Hlynur Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla. Frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar. Hlynur tekur til starfa 1. ágúst nk. en hann leysti af stöðu aðstoðarskólastjóra síðastliðið skólaár. Hlynur hefur starfað við Myllubakkaskóla frá árinu 2011 sem deildarstjóri og kennari, ásamt því að hafa verið umsjónarmaður sérúrræðis og námsvers.

Hlynur lauk námi til B.Sc gráðu í sálfræði við Háskóla Íslands árið 2009, diplómu í kennslufræði við Háskólann á Akureyri 2011 og M.A. í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst 2015.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024