Hlynur ráðinn skólastjóri Myllubakkaskóla
Hlynur Jónsson hefur verið ráðinn skólastjóri Myllubakkaskóla. Hann hefur starfað í stjórnendateymi Myllubakkaskóla við góðan orðstír frá árinu 2017 og hefur verið starfandi skólastjóri frá árinu 2021.
Hlynur lauk BSc gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2009, diplómagráðu í kennslufræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2011 og MA gráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskólanum á Bifröst árið 2015.