Valhöll
Valhöll

Fréttir

Hafnar aftur erindi um íbúð að Hafnargötu 23
Hafnargata 23 í Keflavík.
Mánudagur 11. september 2023 kl. 06:00

Hafnar aftur erindi um íbúð að Hafnargötu 23

Jakob Ingi Jakobsson, f.h. Eignakaupa ehf., kærði þá ákvörðun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar frá 6. desember 2022 að hafna erindi kæranda um leyfi til að breyta verslunarrými að Hafnargötu 23 í Keflavík að hluta til í íbúð og ákvörðun bæjarstjórnar frá 7. febrúar 2023 um að staðfesta þá ákvörðun. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi ákvörðun bæjarstjórnar úr gildi og skal umsókn um að breyta verslunarrými að Hafnargötu 23 að hluta til í íbúð tekin fyrir að nýju.

Í nýrri afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar frá 1. september segir:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Verslunarrými Hafnargötu 23 er hluti af húsaröðinni austan megin við götuna sem samanstanda af Hafnargötu 15, 17, 19, 21, 23 og 25. Saman mynda þessir reitir kjarna verslunar og þjónustuhluta ásamt húsaröðinni vestan megin, Hafnargötu 20, 22, 24 og 26, sem þegar hefur verið deiliskipulögð með þarfir verslunar á jarðhæð í huga. Mikilvægt er að til þess að halda verslun og þjónustu sem lífvænlegum möguleika í götunni, að skipulag sé skoðað heildstætt. Það varðar almannahagsmuni hvernig verslun þróast við götuna þess vegna skv. gr. 5.9.1 skipulagsreglugerðar er eðlileg málsmeðferð að unnið sé deiliskipulag þar sem tekið er á slíkum þáttum. skv. 2. mgr, 37. gr skipulagslaga skal deiliskipulag jafnan miða við að það taki til svæða sem mynda heildstæða einingu. Unnið er að deiliskipulagi fyrir Hafnargötu. Breytingar innan einstakra lóða verða ekki teknar til greina á meðan á þeirri vinnu stendur. Umhverfis- og skipulagsráð hafnar erindinu.“