Hafnað að breyta umferðarmerkingum við Reykjaneshöfn
– stofnanir eiga að samræma tímabundnar merkingar
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hafnaði beiðni um breytingar á umferðarmerkingum við Reykjaneshöfn, þar sem um væri að ræða tímabundið verkefni við Njarðvíkurhöfn. Þetta var samþykkt á fundi ráðsins 6. febrúar.
Beiðnin kom frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir hönd Reykjaneshafnar. Þar var óskað eftir breytingum við Bakkaveg, Víkurbraut og Hrannargötu. Tillagan fól meðal annars í sér að setja stöðvunarskyldu á Bakkaveg í stað biðskyldu og að setja stöðvunarskyldu á Víkurbraut þannig að umferð á Bakkastíg fengi forgang.
Ráðið hafnaði erindinu en tók fram að sveitarfélagið myndi, ásamt framkvæmdaaðila, Heilbrigðiseftirliti og lögreglu, sameinast um að „greiða leiðina“ og bæta merkingar á svæðinu meðan tímabundnar framkvæmdir standa yfir.



