Leikfélag Kef nóv. 25
Leikfélag Kef nóv. 25

Fréttir

Hafðu áhrif á val á FKA viðurkenningarhöfum
Guðbjörg Glóð Logadóttir er ein Suðurnesjakvenna sem hefur fengið FKA viðurkenningu.
Mánudagur 10. nóvember 2025 kl. 13:43

Hafðu áhrif á val á FKA viðurkenningarhöfum

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2026 og félagið kallar eftir tilnefningum - hafðu áhrif á valið og skilaðu inn! FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu.

Hægt er að tilnefna konur í einum flokki eða öllum til og með 21. nóvember nk. Það voru þær Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir sem hlaut FKA viðurkenninguna 2025, Arnhildur Pálmadóttir hlaut FKA hvatningarviðurkenninguna 2025 og Geirlaug Þorvaldsdóttir hlaut FKA þakkarviðurkenninguna 2025. Það verður spennandi að sjá hverjar verða heiðraðar á næstu Viðurkenningarhátíð.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

HLEKKUR TIL AÐ TILNEFNA HÉR

Dómnefnd skipuð sjö aðilum fer yfir allar tilnefningar og verða úrslit kynnt á stórglæsilegri Viðurkenningarhátíð FKA á Hótel Reykjavík Grand 28. janúar 2026.

Dómnefnd mun meta tilnefningar og á endanum, velja konur sem hljóta FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu.

Lögð er áhersla á að fá nöfn ólíkra kvenna á lista, fjölbreyttan hóp kvenna af öllu landinu, með ólíkan bakgrunn og reynslu sem dómnefnd mun vinna með og á endanum velja þær konur sem verða heiðraðar.

FKA heldur áfram að skrifa konur inn í söguna

FKA viðurkenningin var fyrst veitt árið 1999 og síðustu ár hefur framlína í íslensku atvinnulífi og nánir samstarfsfélagar og fjölskyldur viðurkenningarhafar fagna saman á

stórglæsilegri hátíð sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu. Á Viðurkenningahátíðinni eru veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem hafa verið

hvatning og fyrirmyndir:

- FKA Viðurkenning er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða

þeim sem er eða hefur verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.

- FKA Hvatningarviðurkenning er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert

frumkvæði eða nýjungar.

- FKA Þakkarviðurkenning er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda

í atvinnulífinu.

Hvaða þrjár konur verða heiðraðar? Hafðu áhrif og sendu inn tilnefningu fyrir FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2025.

Viðurkenningarhafar síðustu ára – frá upphafi:
- FORSENDUR - FKA Viðurkenning er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem er eða hefur verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir
Tanya Zharov
Ásta Sigríður Fjeldsted
Hafrún Friðriksdóttir
María Fjóla Harðardóttir
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir
Margrét Kristmannsdóttir
Erna Gísladóttir
Guðrún Hafsteinsdóttir
Birna Einarsdóttir
Guðbjörg Matthíasdóttir
Liv Bergþórsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
Rannveig Grétarsdóttir
Aðalheiður Birgisdóttir
Vilborg Einarsdóttir
Rannveig Rist
Steinunn Sigurðardóttir
Halla Tómasdóttir
Ásdís Halla Bragadóttir
Katrín Pétursdóttir
Aðalheiður Héðinsdóttir
Svava Johansen
Elsa Haraldsdóttir
Þóra Guðmundsdóttir
Hillary Rodham Clinton

- FORSENDUR - FKA Hvatningarviðurkenning er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Arnhildur Pálmadóttir
Inga Tinna Sigurðardóttir
Grace Achieng
Edda Sif Pind Aradóttir
Fida Abu Libdeh
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Helga Valfells
Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir
Kolbrún Hrafnkelsdóttir
María Rúnarsdóttir
Rakel Sölvadóttir
Helga Árnadóttir, Signý (Tulipop)
Árný Elíasdóttir, Inga Björg, Ingunn B. Vilhjálms (Attendus)
Margrét Pála Ólafsdóttir
Marín Magnúsdóttir
Agnes Sigurðardóttir
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
Guðbjörg Glóð Logadóttir
Jón G. Hauksson
Edda Jónsdóttir
Freydís Jónsdóttir
Guðrún Hálfdánsdóttir
Íris Gunnarsdóttir/Soffía Steingríms
Lára Vilberg

- FORSENDUR - FKA Þakkarviðurkenning er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:
Geirlaug Þorvaldsdóttir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir
Katrín S. Óladóttir
Bryndís Brynjólfsdóttir
Anna Stefánsdóttir
Sigríður Ásdís Snævarr
Hildur Petersen
Hafdís Árnadóttir
Sigríður Vilhjálmsdóttir
Guðný Guðjónsdóttir
Guðrún Edda Eggertsdóttir
Guðrún Lárusdóttir
Erla Wigelund
Dóra Guðbjört Jónsdóttir
Bára Magnúsdóttir
Guðrún Birna Gísladóttir

Fréttatilkynning frá FKA á Íslandi.

Dubliner
Dubliner