Flugger
Flugger

Fréttir

Hættumatskort Veðurstofunnar enn í gildi
Mánudagur 4. desember 2023 kl. 11:41

Hættumatskort Veðurstofunnar enn í gildi

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvað þann 28. nóvember sl. að rýmka þann tíma sem Grindvíkingar hafa til þess að huga að eigum sínum i Grindavíkurbæ. Átti það jafnframt við um þá sem reka þar atvinnustarfsemi. Lokanir eru áfram á Grindavíkurvegi, Suðurstrandarvegi og á Nesvegi. Leiðin inn og út úr Grindavík er sem fyrr um Suðurstrandarveg og Nesveg. Grindavíkurvegur verður áfram lokaður fyrir almenna umferð. Opið verður fyrir íbúa frá kl. 7 á morgnana til kl. 17 síðdegis. Fyrirtæki geta hafið starfsemi kl. 7 en þurfa að hætta starfsemi kl. 21. Fyrirtæki geta hafið rekstur þar sem lagnakerfi eru í lagi en unnið er að því að koma þessum kerfum í lag. Eigendur fyrirtækja þurfa að huga að þessu sérstaklega áður en starfsemi getur hafist á ný. Þeir hafi eigin viðbragðsáætlanir klárar fyrir sitt fólk. Fjölmiðlar hafa aðgang að Grindavík til kl. 21 daglega. Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja verður ekki  fylgt inn á svæðið en björgunarsveitir verða í viðbragðsstöðu víða um bæinn. Það sama gildir fyrir fjölmiðlafólk. Óviðkomandi er bannaður aðgangur. Bílar verða taldir inn og út af svæðinu. Fyrri rýming er eftir kl. 17 og sú seinni eftir kl. 21.

Hættumatskort sem Veðurstofan gaf út 22. nóvember 2023 er enn í gildi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Drónabann hefur verið framlengt til 15. desember 2023. Fjölmiðlar fá undanþágu frá banni með skilyrðum. Sótt er um undanþágu á netfangið: [email protected]

Ákveðið var að færa almannavarnastig á hættustig fimmtudaginn 23. nóvember sl.  

Þrátt fyrir minni virkni við kvikuganginn og næsta nágrenni þá er landris áfram stöðugt við Svartsengi. 

Atburðurinn sem hófst þann 25. október með mikilli skjálftavirkni sem náði toppi að kvöldi 10. nóvember sl. þegar 15 km kvikugangurinn myndaðist er ekki lokið. Veðurstofan vaktar svæðið allan sólarhringinn.

Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar gefa það til kynna með hljóðmerkjum og ljósmerkjum. Ekið er úr bænum eftir Suðurstrandarvegi eða Nesvegi.

Til athugunar fyrir þá sem fara inn í bæinn:

  • Íbúar í Grindavík þurfa ekki að skrá sig til að komast inn í bæinn.  Bílar eru taldir inn og út af svæðinu.
  • Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.
  • Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum.  Ekki er æskilegt að börn séu tekin með en sprungur geta reynst viðsjárverðar.
  • Frárennslislagnir liggja undir skemmtum og rennandi vatn er af skornum skammti þannig að víða er ekki hægt að nota salerni í húsum.
  • Mælt er með að fólk komi með vatn og nesti fyrir daginn.
  • Hafa ber í huga að hús gætu verið ótrygg. Hægt er að hafa samband við viðbragðsaðila í Grindavík.
  • Mikilvægt er að þeir sem fara til Grindavíkur fylgi ávallt tilmælum viðbragðsaðila.