HSS
HSS

Fréttir

Gámasalar geta búið sig undir góðæri
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 9. júní 2025 kl. 16:42

Gámasalar geta búið sig undir góðæri

Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og formaður skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja vandar ekki nýrri ríkisstjórn kveðjurnar í nýlegum pistli sínum í kjölfar ákvörðunar hennar að fresta viðbyggingu við skólann fyrir verknámsbrautir.

„Gámasalar landsins skulu búa sig undir góðæri því það er ekkert fararsnið á þeim sem eru fyrir utan skólann og von á fleirum ef fram heldur sem horfir því aðsóknin í námið hefur aldrei verið meiri.“

Bjarni greinir frá þessu á Facebook og segir þetta sorglega niðurstöðu en síðasti menntamálaráðherra greindi formlega frá því á síðasta ári og skrifaði undir það að byggt yrði við Fjölbrautaskólann en aðsókn hefur verið mikil og  vaxandi síðustu ár. Nú í vor var t.d. fjölmennasta útskrift í sögu hans.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Hafandi verið þess heiðurs aðnjótandi að vera formaður skólanefndar Fjölbrautarskóla Suðurnesja undanfarin ár og fengið að fylgjast með allri þeirri vinnu sem starfsmenn hafa lagt af mörkum til þess að bæta verknámsaðstöðu er ótrúlega sorglegt að fá fréttir þess efnis að ekkert eigi að gera í þeim efnum á þessu ári samanber fjáraukafrumvarp ríkisstjórnarinnar.

Sveitarfélög á Suðurnesjum hafa skuldbundið hundruð milljóna í verkefnið þar af Reykjanesbær yfir 80% þeirrar fjárhæðar. Auk þess hafa embættismenn bæjarins eytt fjölmörgum vinnustundum í að styðja við verkefnið.

Síðan fáum við fréttirnar á þennan máta án þess að það sé svo mikið sem rætt við Reykjanesbæ, stjórnendur skólans eða önnur sveitarfélög á svæðinu,“ segir Bjarni og vísar til fundargerðar skólanefndar þar sem fjallað er um málið.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri tjáði sig um skrif Bjarna og sagði: „Þessar fréttir komu í sömu viku og við heyrðum þær jákvæðu fréttir að brotthvarf nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er komið undir landsmeðaltal og það er gríðarleg aðsókn í skólann. Þessi ákvörðun er með öllu óskiljanleg!“.

Á síðasta skólaári var kennt í tveimur gámum og í sumarhúsi sem nemendur skólans byggðu á þar síðasta skólaári. 

Sagt var frá málinu á vf.is nýlega.