Formaður Víðis: „Sérhagsmunir eru teknir fram yfir almannahagsmuni“
Gísli Heiðarsson, formaður knattspyrnufélagsins Víðis í Garði, gagnrýnir harðlega ákvörðun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar um að leggja gervigras á aðalvöll Reynis í Sandgerði. Í færslu á Facebook segir hann sérhagsmuni tekna fram yfir hagsmuni barnanna og kallar eftir borgarafundi í Garði um málið.
Viðbrögð Gísla koma í kjölfar fréttar Víkurfrétta um ákvörðun bæjarstjórnar á miðvikudag. Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum B- og S-lista gegn fjórum atkvæðum fulltrúa D-lista og Miðflokksins. Minnihlutinn vildi þess í stað hefja uppbyggingu sameiginlegrar íþróttaaðstöðu á Miðjunni milli Garðs og Sandgerðis.
Gísli telur bestu og einu lausnina vera að byggja fjölnota hús á Miðjunni sem nýtist öllu sveitarfélaginu. Segir hann Víði alltaf hafa talað fyrir þeirri leið, þótt ódýrara væri að leggja gervigras á gamla malarvöllinn í Garði. Í færslunni nefnir hann 606 milljóna króna kostnað við þann kost á móti 774 milljónum í Sandgerði.
Hann krefur bæjarfulltrúana sem samþykktu tillöguna um svör við því hverjum völlurinn eigi að þjóna. Að hans sögn var spurt að því á fundinum án þess að svar fengist.
Þá gagnrýnir Gísli skort á samráði við félagið. „Ekkert samráð var haft við Víði um þessi mál, EKKERT,“ skrifar hann. Hann segist jafnframt hafa óskað eftir fundi með formanni bæjarráðs fyrir nokkrum vikum en sá fundur hafi enn ekki orðið að veruleika.
Samkvæmt frétt Víkurfrétta felur samþykkt bæjarstjórnar einnig í sér að leitað verði leiða til að bæta æfingaaðstöðu í Garði í samstarfi við Víði, meðal annars með því að færa og stækka sparkvöll fyrir börn og ungmenni. Þá eigi að efla samgöngur milli byggðakjarnanna og undirbúa hugmyndasamkeppni um framtíðaríþróttamannvirki á Miðjunni.
Gísli vill að boðað verði til borgarafundar í Garði þar sem farið verði yfir málið með hagsmuni barnanna að leiðarljósi.






