Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Fleiri farþegar um Keflavíkurflugvöll nú en fyrir heimsfaraldur
Keflavíkurflugvöllur
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
föstudaginn 5. ágúst 2022 kl. 11:00

Fleiri farþegar um Keflavíkurflugvöll nú en fyrir heimsfaraldur

Farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll í júlímánuði, nú í ár, var meiri en í júlí árið 2019. Þá fóru 852.431 farþegar um flugvöllinn og hefur Keflavíkurflugvöllur því náð 101% endurheimt samanborið við júlí fyrir þremur árum, eða fyrir heimsfaraldurinn.

Það hefur verið stefna flugvallarins frá 2021 að bæta tengingar og auka flugleiðir til og frá vellinum í samstarfi við ólík flugfélög. Þær áætlanir hafa farið fram úr björtustu vonum. Í júlí flugu innlend og erlend flugfélög frá Keflavíkurflugvelli á 77 áfangastaði um allan heim og voru 78,2% heildar brottfarafarþega erlendir. Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunnar hjá Isavia segir það vera frábært að sjá hversu tilbúin flugfélögin voru að auka hratt framboð á flugi til og frá landinu. „Nú er mikilvægt að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnið hefur verið í uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli til að mæta eftirspurninni sem er vaxandi,“ segir hann. 

Miklar framkvæmdir og uppbygging hefur verið á Keflavíkurflugvelli á síðustu árum. Meðal annars vegna byggingu 1200 metra akbrautar fyrir flugvélar og byggingar á nýrri austurálmu sem er rúmlega 20.000 fermetrar að stærð og mun koma til með að bæta upplifun farþega og flugfélaga frá 2024. Einnig hafa flugfélögin Icelandair og Play tilkynnt stækkun fluglfota á næstu misserum og því er mikil þörf á að framkvæmdir haldi áfram.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Þrátt fyrir að rekstur flugvallarins hafi gengið almennt vel yfir sumarmánuðina biðjum við farþega um að sýna þolinmæði og biðlund. Á sama tíma vill Isavia þakka starfsfólki á flugvellinum, flugfélögum og samstarfsaðilum fyrir þeirra mikilvæga framlag að koma öllu í rekstur á ný á flugvellinum,“ segir Guðmundur Daði. 

Myndir af komandi byggingu í austurálmu má sjá hér að neðan

Komandi bygging í austurálmu
Komandi bygging í austurálmu
Komandi bygging í austurálmu