Fjölsóttur Garðskagi fær ekki krónu frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Bæjarráð Suðurnesjabæjar lýsir yfir miklum vonbrigðum með synjun umsóknar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til framkvæmda á Garðskaga.
Í bókun sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar kemur fram að enn og aftur hafi umsókn um fjárframlag til nauðsynlegra framkvæmda á Garðskaga verið hafnað. Umsóknin var unnin í samstarfi við Reykjanes Jarðvang og er markmiðið að bæta aðstöðu á einum vinsælasta ferðamannastað svæðisins.
Garðskagi er samkvæmt mælingum næstfjölsóttasti ferðamannastaður á Suðurnesjum á eftir Bláa lóninu, og hefur bæjarfélagið ítrekað lagt áherslu á nauðsyn umbóta á svæðinu til að tryggja öryggi og góðar móttökuaðstæður fyrir gesti.

Bæjarráð samþykkti að óska eftir rökstuðningi fyrir synjun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á umsókninni. Jafnframt verður kallað eftir upplýsingum frá sjóðnum um framlög til Suðurnesja undanfarin ár og hvernig þau standi í samanburði við aðra landshluta.
Garðskagi hefur lengi verið í brennidepli þegar kemur að ferðamennsku á Suðurnesjum og vonast bæjaryfirvöld til þess að sjóðurinn endurskoði afstöðu sína og meti mikilvægi svæðisins á réttum forsendum.
