HSS
HSS

Fréttir

Fasteignamat á Suðurnesjum hækkar umfram landsmeðaltal
Þriðjudagur 10. júní 2025 kl. 06:22

Fasteignamat á Suðurnesjum hækkar umfram landsmeðaltal

Fasteignamat á Suðurnesjum hækkar meira en á landsvísu samkvæmt nýju fasteignamati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) fyrir árið 2026. Þar kemur fram að fasteignamat á Íslandi hækki að meðaltali um 9,2 prósent á milli ára – en mest er hækkunin á Suðurnesjum og Norðurlandi.

Á Suðurnesjum hefur mikil eftirspurn myndast á íbúðamarkaði, einkum í nágrannasveitarfélögum Grindavíkur. Þessi eftirspurn hefur haft áhrif á fasteignaverð og dregur matið með sér upp. Meðalverð á fermetra á svæðinu er nú komið í 426 þúsund krónur, sem er þó enn um 22,7% lægra en meðaltal landsins, sem nemur 551 þúsund krónum á fermetra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í Grindavíkurbæ hefur fasteignamat aftur á móti verið fryst í annað sinn vegna áframhaldandi óvissu og skorts á markaðsvirkni, en ekkert virkt fasteignaverð liggur fyrir í bænum eftir náttúruhamfarir síðasta árs. HMS hefur því ákveðið að halda fasteignamati Grindavíkur óbreyttu milli áranna 2025 og 2026, rétt eins og í fyrra.

Nýtt fasteignamat HMS tekur gildi 31. desember 2025 og hefur áhrif á útreikning fasteignagjalda sveitarfélaga á árinu 2026.