Sjómannakveðjur 1
Sjómannakveðjur 1

Fréttir

Eiturslöngur og krókódíll í íbúðum á Suðurnesjum
Miðvikudagur 28. maí 2025 kl. 14:34

Eiturslöngur og krókódíll í íbúðum á Suðurnesjum

dýrin flutt lifandi í Húsdýragarðinn

Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð í hús í Njarðvík nýlega þar sem hún var beðin um aðstoð við að fjarlægja þrjá eiturslöngur sem voru í búrum í íbúðinni. Þá barst einnig tilkynning um krókódíl í íbúð í Vogum og var beðið um aðstoð við að fjarlægja hann.

Ragnar Guðleifsson, meindýraeyðir tók slöngurnar en hann var einnig með hanskana og viðeigandi tól til að handsama um eins metra langan krókódíl sem hafði fengið að vaxa í húsnæðinu.

Ragnar setti sig í samband við Matvælastofnun og var niðurstaðan sú að slöngurnar og krókódíllinn voru ekki aflífuð heldur var farið með dýrin á lífi í Húsdýragarðinn í Reykjavík sem hyggur á að hafa þau til sýnis.Aðspurður sagði Ragnar að hann fengi margvísleg erindi eins og þessi en dýrin voru flutt til landsins í pokum eða kössum í farangri fólks frá útlöndum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn