Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Dýrin í Hálsaskógi í netleikhúsi kl. 12:00
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
sunnudaginn 22. mars 2020 kl. 11:26

Dýrin í Hálsaskógi í netleikhúsi kl. 12:00

Sýning Leikfélags Keflavíkur á Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thorbjorn Egner í leikstjórn Gunnars Helgasonar verður sýnd í nýju netleikhúsi Leikfélags Keflavíkur og Víkurfrétta. Sýningin hefst kl. 12:00 og er aðgengileg á fésbókarsíðu Víkurfrétta. Sýningin tekur rúma eina og hálfa klukkustund.

Leikfélag Keflavíkur og Víkurfréttir hafa tekið höndum saman í að stytta Suðurnesjamönnum og öðrum stundir á þessum fordæmalausu tímum heimsfaraldurs COVID-19. Í sameiningu setjum við upp leikhús á netinu og sýnum valdar sýningar frá Leikfélagi Keflavíkur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Næsta sýning sem send verður út í NETLEIKHÚSINU verður svo föstudagskvöldið 27. mars þegar Mystery Boy verður sýnt. Verkið var verðlaunað sem áhugaleiksýning ársins hjá Þjóðleikhúsinu. Höfundur er Smári Guðmundsson en uppsetningin var í leikstjórn Jóels Sæmundssonar.

Sunnudagskvöldið 29. mars verður svo Killer Joe. Höfundur er Tracy Letts, þýðandi Stefán Baldursson en leikstjóri var Davíð Guðbrandsson.