Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Búið að bólusetja alla skjólstæðinga HSS sem þegið hafa boð
Sveinbjörg Ólafsdóttir og Íris Dröfn Björnsdóttir tóku við blómvendi frá Markúsi Ingólfi Eiríkssyni forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í morgun þegar tímamótunum var fagnað. VF-mynd: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 16. júní 2021 kl. 16:41

Búið að bólusetja alla skjólstæðinga HSS sem þegið hafa boð

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja náði ánægjulegum áfanga í bólusetningum gegn Covid-19 í dag. Nú ættu allir skjólstæðingar heilsugæslustöðva HSS, fæddir 2005 eða fyrr og þegið hafa boð um bólusetningu gegn Covid, að hafa fengið a.m.k. fyrri skammt af bóluefni.

Alls voru 1.500 bólusettir í dag og þar af um 500 sem fengu fyrri sprautu.

Public deli
Public deli

Þeir skjólstæðingar HSS sem vilja óska eftir að þiggja eldra boð geta sent upplýsingar um kennitölu og símanúmer á [email protected] og fá þá boð þegar að þeim kemur.

Þá er einnig í boði að skrá sig á heilsugæslustöðvar HSS í gegnum Réttindagátt Sjúkratrygginga, eða með eyðublaði í móttöku HSS. Í framhaldinu má svo óska eftir boði, í tölvupósti á [email protected] með upplýsingum um kennitölu og símanúmer.

Í næstu viku halda bólusetningar áfram á HSS. Þá á að hafa opið hús í Janssen á fimmtudag kl. 13-14. Í boði eru 600 skammtar og verður tekið á móti fólki á meðan birgðir endast.