Reykjanesbær aðventugarðurinn
Reykjanesbær aðventugarðurinn

Fréttir

Bæta þurfi stöðuna í leikskólamálum
Þriðjudagur 23. desember 2025 kl. 08:49

Bæta þurfi stöðuna í leikskólamálum

Staðan í leikskólamálum er mun verri í Reykjanesbæ en í sambærilegum sveitarfélögum. Í byrjun nóvember voru 134 börn á biðlista eftir leikskólaplássi í sveitarfélaginu. Í bókunum minnihlutaflokkanna og meirihlutans er lagt til að gerð verði heildarúttekt á stöðu leikskólamála í Reykjanesbæ en málið var til umræðu á fundi menntaráðs 14. nóvember.

„Markmið úttektarinnar á stöðu leikskólamála er að kanna möguleika á því að taka börn inn í leikskóla í Reykjanesbæ við 18 mánaða aldur en í dag er miðað við börn sem verða tveggja ára á árinu. Einnig verður skoðað á hvaða aldri börn hafa verið þegar þau hafa fengið úthlutað leikskólaplássi í sveitarfélaginu á yfirstandandi kjörtímabili,“ segir í bókun meirihlutans en jafnframt er bent á að nýr leikskóli í Drekadal hafi tekið til starfa með 43 leikskólapláss og 30 verða til viðbótar á árinu 2026. Fullbúinn verður þessi nýi leikskóli í Innri-Njarðvík fyrir 120 börn.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót segja í sinni bókun að Reykjavíkurborg hafi reglulega verið gagnrýnd fyrir slæma stöðu í leikskólamálum „en miðað við stöðu biðlista í leikskólum Reykjanesbæjar sem lagður var fram á fundi fræðsluráðs 14. nóvember virðast biðlistar í Reykjanesbæ vera hartnær helmingi lengri en í borginni ef miðað er við íbúafjölda,“ segir í bókun þeirra.

Ánægja með breytt fyrirkomulag í vetrarfríum og dymbilviku

Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi kynnti niðurstöður kannana sem gerðar voru meðal foreldra og starfsfólks á leikskólum bæjarfélagsins, bæði varðandi skráningardaga í dymbilviku, vetrarfríum og stöðu biðlista.

Varðandi skráninguna í kringum hátíðir var 79% svarenda ánægð með fyrirkomulagið og fannst það skýrt og auðskilið, 69% fannst skráningarferlið auðvelt og 68% sögðust vera ánægð með fyrirkomulagið.

67% foreldra telja afslátt af leikskólagjöldum sanngjarna hvatningu til að nýta ekki þjónustuna á þessum tímabilum. Viðtökur voru almennt góðar en svigrúm er til úrbóta varðandi upplýsingagjöf þar sem um 10% svarenda vissi ekki af afslættinum.

Meðal starfsmanna voru flestir svarendur á því að fyrirkomulagið væri árangursríkt og drægi úr álagi og mönnunarvanda. Meira en helmingur sagði fyrirkomulagið hafa jákvæð áhrif á starfsanda.

VF jól 25
VF jól 25