SSS uppbyggingarsjóður
SSS uppbyggingarsjóður

Fréttir

Auka vernd Grindavíkur gagnvart mögulegu hraunflæði með hærri garði
Að mati ríkislögreglustjóra er varnargarðshlutinn sem um ræðir einn helsti átakapunkturinn í vörnum Grindavíkur, þar sem kvikugangur liggur undir garðinum og kvika hefur tvisvar runnið innan hans.
Miðvikudagur 8. október 2025 kl. 17:14

Auka vernd Grindavíkur gagnvart mögulegu hraunflæði með hærri garði

Dómsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ríkislögreglustjóra um viðbætur við varnargarða norðan Grindavíkur. Með ákvörðuninni verður varnargarðurinn hækkaður um tvo til þrjá metra á um 450 metra kafla til að tryggja virkni hans og auka vernd bæjarins gagnvart mögulegu hraunflæði.

„Það er skýrt markmið stjórnvalda að tryggja öryggi íbúa og innviði. Við höfum séð að varnargarðarnir hafa reynst vel. Með þessari ákvörðun tryggjum við áframhaldandi vörn og öryggi á svæðinu,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra á vef Stjórnarráðsins.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Vinna við framkvæmdirnar eru hafnar og áætlaður kostnaður vegna framkvæmdanna er um 80–120 milljónir króna.

Varnargarðar gegnt lykilhlutverki við að draga úr tjóni

Allt frá því að jarðhræringar hófust á Reykjanesskaga í árslok 2019 hefur almannavarnakerfið unnið að gerð sviðsmynda eldsgoss og hraunflæðis. Markmið þeirrar vinnu er að greina með hvaða hætti sé unnt og best að vernda íbúa og mikilvæga innviði fyrir hraunrennsli ef eldgos hefst.

Framkvæmdirnar eru liður í aðgerðum stjórnvalda til að verja Grindavík og mikilvæga innviði á Reykjanesskaga vegna áframhaldandi jarðhræringa á svæðinu og varnargarðarnir hafa gegnt lykilhlutverki við að verja bæinn og dregið úr hættu á tjóni á mannvirkjum og innviðum.

Að mati ríkislögreglustjóra er varnargarðshlutinn sem um ræðir einn helsti átakapunkturinn í vörnum Grindavíkur, þar sem kvikugangur liggur undir garðinum og kvika hefur tvisvar runnið innan hans. Hraun hefur einnig lækkað virkni garðsins á um 430 metra kafla og því nauðsynlegt að endurheimta fyrri hæð til að tryggja öryggi byggðar og innviða.

Áframhaldandi vöktun og samráð

Framkvæmdir við varnargarðana eru skipulagðar í nánu samráði við embætti ríkislögreglustjóra og hlutaðeigandi aðila.

Ráðherra leggur áherslu á að fylgst verði áfram náið með þróun jarðhræringa og að ekki verði gengið lengra en nauðsynlegt er við framkvæmdina. Þá verði fyllsta öryggis gætt á verkstað og leitast við að lágmarka áhrif á umhverfi og náttúru.

Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025