Áramótabrenna í Sveitarfélaginu Vogum
Eina áramótabrennan á Suðurnesjum sem okkur er kunnugt um verður tendruð á Vatnsleysuströnd í kvöld kl. 20:30. Gert er ráð fyrir áramótagleði, tónlist og góðri stemningu.
Brennan verður á sama stað og í fyrra inn á Vatnsleysuströnd, á túninu fyrir neðan Skipholt. Gott aðgengi er að brennunni á bíl og hægt er að leggja bílum t.d. við skemmuna neðan við Skipholt.
Staðsetningin er merkt á myndinni hér fyrir neðan með rauðu X.





