Áframhaldandi landris í Svartsengi
Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi, sem bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar á svæðinu. Ef hraði landrissins helst svipaður og hann hefur verið undanfarnar vikur, má ætla að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið. Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat.
Vísindamenn Veðurstofunnar halda áfram að endurskoða mögulega sviðsmyndir á þróun kvikusöfnunar í Svartsengi, segir í tilkynningu Veðurstofunnar.
Jarðskjálftavirkni við kvikuganginn, sem myndaðist 1. apríl, heldur áfram að dvína. Mest hefur virknin verið syðst í ganginum, en hún hefur minnkað jafnt og þétt á undanförnum dögum. Skjálftavirkni á svæðinu við Fagradalsfjall hefur einnig farið minnkandi. Í gær, þriðjudag, urðu þó nokkrir jarðskjálftar við Sundhnú.
Hættumat hefur verið uppfært og helst óbreytt og gildir til 3.júní að öllu óbreyttu.