HSS
HSS

Aðsent

Tveir vellir og ein stúka – er það skynsamlegt?
Mánudagur 2. júní 2025 kl. 11:04

Tveir vellir og ein stúka – er það skynsamlegt?

Á síðasta fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar þann 28. maí 2025 var samþykkt samhljóða bókun um að hefja hönnunarvinnu og kostnaðargreiningu vegna gervigrasvallar á aðalvelli Reynis í Sandgerði. Ásamt því á að vinna kostnaðaráætlun á gerð nýrrar stúku og uppbyggingu nýs æfingasvæðis í Garði. Sveitarfélagið stefnir nú að þremur stórum fjárfestingum í íþróttamannvirkjum – í stað þess að ráðast í eina skynsama og hagkvæma lausn eins og áður hafði verið lagt til.

Fram hafði farið fagleg vinna þar sem lá fyrir skýr greining á þörfum íþróttastarfs í Suðurnesjabæ. Hún sýndi að skortur er fyrst og fremst á vetraræfingaaðstöðu, en sumaræfingaaðstaða er þegar til staðar í Sandgerði og keppnisvellir með náttúrulegu grasi eru góðir beggja vegna. Niðurstaða samráðsteymis sem í sátu fulltrúar sveitarfélagsins og íþróttafélaganna var því sú að setja upp gervigrasvöll á gamla malarvellinum í Garði og leggja niður æfingaaðstöðuna í Garði í staðin sem er afar bágborin og þarfnast hvort sem er endurnýjunar. Þannig hefði mátt bæta þá aðstöðu sem mest vantar án þess að hrófla við góðri aðstöðu annars staðar. Sú tillaga byggði á sanngirni, jafnræði og raunsæi sem myndi þá leiða til að vetraræfingaaðstaða beggja félaganna yrði í Garði og sumaræfingaaðstaða yrði í Sandgerði sem ber merki um sanngirni. Í framhaldinu væri hægt að hefja viðræður um sameiningu félaganna.

Þessi niðurstaða hlaut faglega sátt og hafði fengið formlegan og undirritaðan stuðning beggja knattspyrnufélaga í sveitarfélaginu með undirrituðum fundargerðum. Áætlað var að nýr gervigrasvöllur í Garði yrði í eigu sveitarfélagsins, þjónustaði bæði félögin og yrði mikilvægur liður í þeirri sýn að efla barna- og ungmennastarf í sveitarfélaginu. Sú tillaga var hins vegar hundsuð af tveim bæjarfulltrúum á 143. fundi bæjarráðs þann 29. maí 2024 með afdrifaríkum afleiðingum. Skapast hefur ósætti og hugmyndir um sameiningu félaganna foknar út í veður og vind og ekki lengur möguleg eins og sást berlega í kosningu sem fram fór um þau mál nýlega.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sóun fjár og auðlinda

Í stað þess að fylgja skynsamlegu leiðinni hefur verið tekin ákvörðun um að leggja gervigras á aðalvöll Reynis sem er góður og vel við haldinn náttúrulegur keppnisvöllur. Að moka upp slíkum velli, flytja burtu lifandi efni og leggja gervigrasvöll í hans stað, er í eðli sínu sóun – bæði á fjármagni og náttúruauðlindum.

Til að bæta upp fyrir þessa óskynsamlegu ákvörðun á að byggja nýja stúku og nýtt æfingasvæði í Garði – í stað þess að byggja einfaldlega einn völl . Ekki liggur fyrir heildstætt mat á samanlögðum kostnaði þessarar nýju þriggja þátta leiðar, sem ljóst er að mun verða mun dýrari en sú lausn sem áður lá fyrir – og var samhljóða samþykkt af þeim sem ættu helst að vita hver þörfin er.

Komið hefur fram í fjölmiðlum að hlutfall barna sem stunda skipulagðar íþróttir í Suðurnesjabæ er lægra en í flestum öðrum sveitarfélögum. Í fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs Suðurnesjabæjar frá 15. september 2022, var lýst yfir áhyggjum af þessari þróun og lögð áhersla á að bæta aðstöðu og stuðla að aukinni þátttöku barna í slíku starfi. Í bókun bæjarstjórnar í því máli segir meðal annars:

„Eins og fram kemur í minnisblaði íþrótta- og tómstundaráðs og einnig í Skólapúlsinum, þá stunda börn í Suðurnesjabæ mun síður íþróttir en börn í öðrum sveitarfélögum.“

Sú staðreynd ætti að kalla á róttækar aðgerðir í þágu barna.

Nýtt íþróttafélag

Kosið var um nýtt íþróttafélag 14. maí og var tillagan felld og virði ég þær niðurstöður enda treysti ég félagsmönnum til að taka þá afstöðu og þakka öllum sem komu og greiddu atkvæði.

Þó var þó einn ljótur blettur á að inn kom grein með kolröngum upplýsingum og voru þær þess eðlis að það kostaði aukalega að laga svæðið í Garðinum uppá 424 milljónir sem er alrangt, staðreyndin er hins vegar sú að ef völlurinn kæmi í Garðinn þá yrði enginn aukakostnaður því hann færi ekki að aðlvöllinn heldur á gamla malarvöllinn.

Óljóst eignarhald og afnot

Það þarf líka að benda á annað: Aðalvöllur Reynis hefur hingað til verið undir stjórn félagsins sjálfs, með tilheyrandi tekjum og aðgangsstýringu. Nú á hins vegar að gera hann að sameiginlegum gervigrasvelli til æfinga í umsjá Suðurnesjabæjar – en samkvæmt bókun bæjarráðs hefur ekki enn verið gert samkomulag við Reyni um þessi nýju yfirráð. Reynir mun þá væntanlega láta frá sér umsjón og skipulag á aðalvelli sínum ásamt tekjuöflunarhlutverki vallarins og eðlilegt að tekjur og aðgangur á sameiginlegum velli skiptist jafnt á milli félaganna með samkomulagi þar um og ekki er heimild að selja nafnið á vellinum sem Bronz völlurinn í dag. Þetta skapar óvissu sem þarf að leysa áður en lengra er haldið. Slík grundvallarbreyting á hlutverki og aðkomu félags að sínum eigin heimavelli á ekki að fara fram án trausts, samráðs og gagnsæis.

Hver er forgangsröðunin?

Þegar stjórnsýsla grípur til þrefaldra framkvæmda til að leysa eitt vandamál – sem þegar var búið að finna lausn á – þá hlýtur að vakna spurning um forgangsröðun og meðferð almannafjár. Á tímum þegar sveitarfélög þurfa að forgangsraða í velferðarmálum, skólastarfi og sérílagi íþróttastarfi – hljótum við að spyrja: Hver er raunverulegur ávinningur af þessari ákvörðun?
Sem formaður Víðis og íbúi í Suðurnesjabæ get ég ekki setið hljóður hjá. Fyrir lá lausn sem byggði á traustri vinnu og sátt – en nú blasir við flókin og kostnaðarsöm leið sem útlit er fyrir að erfitt verði að réttlæta fyrir íbúum sveitarfélagsins. Ýmsar aðrar leiðir eru færar en sú leið sem bæjarstjórn Suðurnesjabæjar er á, er sú allra óskynsamlegasta af þeim möguleikum sem nefndir hafa verið hinga til.

Miðjan

Úr því að ekki varð til nýtt félag þá hefur kanttspyrnfélgið Víðir bent á með áðursendri grein í VF og til bæjarstjórnar að skynsamlegast sé að framtíðaruppbygging fari fram á miðjunni og þar með talið gervigrasvöllurinn eða jafnvel hálf hús sem gæti nýst einnig fyrir æfingar hjá golfklúbbnum.

Það er mitt hjartans mál að gæta jafnræðis allra bæjarbúa í Suðurnesjabæ og að fjárfestingar í íþróttamannvirkjum styðji við sameiginlega framtíðaruppbyggingu. Með því að staðsetja gervigrassvæðið í miðju bæjarfélagsins er best tryggt að þessi mikilvæga aðstaða nýtist sem flestum og styðji við jákvæða þróun barna- og unglingastarfs á svæðinu.

Niðurstaða

Það þarf ekki þrjá velli og stúku til að leysa eitt vandamál. Það þarf ábyrgð, samráð og skynsemi pólitískt kjörinna fulltrúa.

Gísli Heiðarsson,
formaður Víðis og íbúi Suðurnesjabæjar.