Reykjanes Optikk
Reykjanes Optikk

Aðsent

Heyrnarlausir selja penna
Mánudagur 12. janúar 2026 kl. 09:37

Heyrnarlausir selja penna

Í janúar munu heyrnarlausir sölumenn á vegum Félags heyrnarlausra heimsækja bæjarfélög á Suðurnesjum og hefja sölu veglegra penna. Söfnunin er til styrktar Norrænni menningahátíð heyrnarlausra sem haldin verður á Selfossi dagana 29. júlí til 2. ágúst næstkomandi sumar.

Búist er við allt að 400 þátttakendum alls staðar af Norðurlöndunum og verða menning og listir og sviðslistir allsráðandi á hátíðinni ásamt fyrirlestrum og málstofum auk þess sem öflug barnadagskrá er í boði á meðan foreldrar sækja viðburði en áætlaður heildarkostnaður við hátíðina er um 27 milljónir króna. Skipuleggjendur vonast eftir hlýjum móttökum þegar sölumennirnir koma í heimsókn og þakka fyrirfram fyrir stuðninginn.

Framsókn
Framsókn
Framsókn
Framsókn