JS Campers
JS Campers

Viðskipti

Rafbílar sýndir á Suðurnesjum
Rafbíll frá Tesla.
Föstudagur 24. október 2014 kl. 17:00

Rafbílar sýndir á Suðurnesjum

Þrjá tegundir rafbíla verða sýndir á sérstakri bílasýningu við húsakynni Kaffitárs í Njarðvík nk. laugardag. Fyrirtækið Even, sem er í eigu Gísla Gíslasonar, mun sýna Tesla, Renault Zoe og Nissan Leaf rafbíla frá kl. 12 til 15.

Gísli segir að sprenging hafi orðið í sölu rafbíla nú í haust. Samstarf við Norðmenn í innflutningi á rafbílum komi viðskiptavinum til góða en Norðmenn eru mjög stórtækir í innflutningi á rafbílum. Gísli segir að stór kostur við rafbíla sé lítið viðhald og ekki þurfi sífellt að fara með bílinn í kostnaðarsama skoðun.

„Við erum bún­ir að vera að selja raf­bíla núna í fimm ár og á þeim tíma höf­um við einu sinni þurft að skipta um ör­yggi í ein­um bíl. Við höf­um ein­fald­lega aldrei þurft að fara með bíl í viðgerð, sem kalla mætti svo,“ sagði Gísli.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024