Mannlíf

Svona var stemmningin í dansbyltingunni
Þriðjudagur 21. febrúar 2017 kl. 09:11

Svona var stemmningin í dansbyltingunni

Dansbyltingin Milljarður rís er haldin á vegum UN Women víða um heim. Á Suðurnesjum var dansað í Hljómahöllinni þar sem minning Birnu Brjánsdóttur var heiðruð.
 
„Tökum höndum saman og berjumst gegn kynbundnu ofbeldi með væntumþykju, hlýju og dansi,“ segir í tilkynningu frá UN Women. Yfir milljarður karla, kvenna og barna komu saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem konur þurfa ekki að óttast ofbeldi og áreiti fyrir það eitt að vera konur.
 
Í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur hafa konur hér á landi stigið fram og lýst þeim veruleika sem þær búa við. Þeim ótta og óöryggi sem þær finna fyrir á götum úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forðast augnsamband, velja ákveðnar götur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og símanum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Þessi veruleiki er þó síður en svo aðeins bundinn við Reykjavík. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim.
 
Myndatökumaður Víkurfrétta fangaði stemmninguna í meðfylgjandi myndskeið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024