Public deli
Public deli

Mannlíf

Lög unga fólksins á Ljósanótt 2015
Sunnudagur 28. júní 2015 kl. 19:10

Lög unga fólksins á Ljósanótt 2015

– Með blik í auga 2015

Með blik í auga setur upp sýninguna Lög unga fólksins á Ljósanótt 2015 en sýningar hópsins eru orðnar ómissandi hluti af dagskrá hátíðarinnar.

Að þessu sinni verður horft til þessa vinsæla útvarpsþáttar og skoðuð sú togstreita og þau átök sem urðu milli þeirra ungu og sem eldri voru. „Hvar er Tom Jones?“ heyrðist þá iðulega þegar þau eldri könnuðust ekki við lögin sem spiluð voru. Flutt verða lög frá 1965 - 1987 og tímaferðalagið heldur áfram.
Sýningin verður með svipuðum hætti og áður en þó með eilítið breyttu sniði, en að þessu sinni mun Leikfélag Keflavíkur taka þátt í sýningunni með sketsum á milli laga.

Haldnar verða þrjár sýningar í Andrews leikhúsinu á Ásbrú, frumsýning miðvikudaginn fyrir Ljósanótt og tvær sýningar á sunnudeginum að venju. Miðasala mun hefjast á midi.is þann 10. ágúst.

Hægt verður að fylgjast með á Facebook síðu hópsins hér.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024