Mannlíf

Kvikmyndatónleikar Lúðrasveitar
Þriðjudagur 24. febrúar 2015 kl. 08:15

Kvikmyndatónleikar Lúðrasveitar

Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á morgun

Kvikmyndatónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir í Stapa, Hljómahöllinni. miðvikudaginn 25. febrúar kl.19. 

Á tónleikunum koma fram yngsta, mið og elsta lúðrasveit skólans.

Það kennir ýmissa grasa í efnisskrá tónleikanna, en þó einkennast þeir af kvikmyndatónlist sem er þema tónleikanna. Jafnframt verða sýnd myndskeið úr viðkomandi myndum. Sem dæmi, þá verður leikin tónlist úr kvikmyndunum Latibær, Frozen, Hringjarinn frá Notre Dame og úr ýmsum Disneymyndum.
Stjórnendur lúðrasveitanna eru Karen J. Sturlaugsson, Björgvin R. Hjálmarsson, Harpa Jóhannsdóttir og Kristín Þ. Pétursdóttir.

Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum.  Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Allir áhugasamir eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér gesti.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024