Mannlíf

Kvenfélagskonur funda í Garði um helgina
Frá fundi kvenfélagskvenna í Kirkjulundi fyrir nokkrum misserum. Mynd úr safni.
Föstudagur 6. mars 2015 kl. 16:37

Kvenfélagskonur funda í Garði um helgina

Kvenfélagið Gefn verður gestgjafi aðalfundar Kvenfélagasambands Gullbringu-og Kjósarsýslu nú um helgina. Fundurinn verður haldinn í sal grunnskólans, Miðgarði í Gerðaskóla.

Von er á um 50 konum frá kvenfélögum innan sambandsins til fundarins.   Kvenfélögin eiga sér langa og farsæla sögu á Íslandi. Þau hafa látið sig samfélagsleg verkefni varða og hafa víða verið kjölfesta í sínum samfélögum og skipt miklu máli í félagslífi hvers sveitarfélags.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024