Mannlíf

Glænýtt myndband frá hljómsveitinni Valdimar
Skjáskot úr myndbandinu.
Miðvikudagur 20. maí 2015 kl. 08:20

Glænýtt myndband frá hljómsveitinni Valdimar

- við lagið „Út úr þögninni“.

„Nýja myndbandið er komið á Youtube. Ógeðslega flott myndband hjá honum Bowen, mér finnst að þið ættuð að tékka á því. Lagið er líka mjög næs, þó ég segi sjálfur frá,“ sagði Valdimar Guðmundsson, tónlistarmaður og söngvari hljómsveitarinnar Valdimar á Facebook síðu sinni í gærkvöldi. 

Hljómsveitin opinberaði glænýtt og glæsilegt myndband sitt á Youtube í gærkvöldi við lagið „Út úr þögninni“, af nýrri plötu hljómsveitarinnar, „Batnar útsýnið.“

Gerð myndbandsins var í höndum framleiðandans Bowen Staines, sem gert hefur myndbönd fyrir hljómsveitir eins og Sólstafi, Skálmöld og Ólaf Arnalds.  

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hér er myndbandið: