Mannlíf

Fjölmenni í Skötuveislu í Garðinum
Fimmtudagur 21. júlí 2016 kl. 12:32

Fjölmenni í Skötuveislu í Garðinum

Myndir frá fjörinu - Tíunda skötumessan

Að vanda var fjölmenni sem mætti til Skötumessu í Garðinum sem haldin var í tíunda sinn í gærkvöldi. Góður rómur var gerður að skötunni sem er sívinsæl meðal landsmanna. Líkt og áður stigu fjölmargir á svið og fluttu fjölbreytt skemmtiatriði. Þeir sem mættu í Garðinn í gær nutu ekki einungis matar og skemmtunar, heldur létu þau gott af sér leiða þar sem góð málefni njóta góðs af skötumessunni ár hvert. Meðfylgjandi eru myndir frá fjörinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024