Mannlíf

Bergrisinn hylltur við Víkingaheima á fullveldisdaginn
Þriðjudagur 24. nóvember 2015 kl. 15:05

Bergrisinn hylltur við Víkingaheima á fullveldisdaginn

Sá siður hefur myndast á Fullveldisdaginn 1. desember að hópur fólks hefur komið saman og haldið Landvættablót við Garðskagavita til að hylla bergrisann sem er landvættur Suðurlands. Nú hefur verið ákveðið að flytja Landvættablótið að Víkingaheimum þar sem höfuð bergrisans eftir Jón Adolf Steinólfsson stendur nú og bíður þess að verða fullgerður. Safnast verður saman við Víkingaheima og hefst athöfnin klukkan 18:00 og mun Jóhanna Harðardóttir Kjalnesingagoði stýra henni.

Landvættir hafa samkvæmt fornum sögum gætt landsins síðan í árdaga og í Landnámu segir frá því þegar Haraldur konungur Gormsson sem var illa þokkaður af Íslendingum sendi njósnara sinn í hvalslíki til landsins og landvættirnir tóku á móti honum og flæmdu burt frá landinu. Þegar hann kom vestur um land segir svo: Brott fór hann þaðan og suður um Reykjanes og vildi ganga upp á Vikarsheiði. Þar kom á móti honum bergrisi og hafði járnstaf í hendi, og bar höfuðið hærra en fjöllin, og margir aðrir jötnar með honum. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Boðið verður upp á kaffi að lokinni athöfn.