Íþróttir

Toppslagur í Njarðvík í kvöld
Föstudagur 18. ágúst 2017 kl. 12:23

Toppslagur í Njarðvík í kvöld

-Umtalsverð upphæð safnast í Facebook leik

Njarðvík fær Magna frá Grenivík í heimsókn í kvöld á Njarðtaksvöllinn í Njarðvík. Njarðvík er í 1. sæti annarar deildar og Magni er í 2. sæti. Þannig að um er að ræða stórleik tveggja efstu liðanna.

Síðustu viku hefur staðið yfir áheitaleikur á Facebook þar sem heitið hefur verið á liðið. Að sögn Jóns Einarssonar, formanns knattspyrnudeildar Njarðvíkur sem hóf leikinn, hefur hann gengið frábærlega og umtalsverð upphæð safnast. „Það er gaman að sjá hversu margir hafa tekið átt í þessum leik og eru tilbúnir að leggja okkur lið.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Rafholt hefur verið stór styrktaraðili knattspyrnudeildarinnar og ætlar að bjóða þeim sem hafa styrkt félagið í gengum í Facebook leikinn frítt á leikinn í kvöld. Jón hvetur alla stuðningsmenn liðsins til að mæta á leikinn og hvetja sína menn til sigurs. Leikurinn hefst kl. 18:30 á Njarðtaksvellinum í Njarðvík.