Íþróttir

Þríþraut 3N um helgina
Fimmtudagur 25. ágúst 2016 kl. 06:00

Þríþraut 3N um helgina

- Skráningu lýkur í dag

Árleg þríþraut 3N – Þríþrautadeildar UMFN fer fram næsta laugardag, 27. ágúst, í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Keppt verður í sprettþraut að morgni dags en fjölskylduþríþraut, liðakeppni hefst í hádeginu. Skráningu lýkur í dag, fimmtudaginn 25. ágúst.

Sprettþrautin hefst klukkan 9:00 í Vatnaveröld þar sem keppt verður í 400 metra sundi, 10 km hjólreiðum og 2,5 km hlaupi. Boðið verður upp á byrjendaflokk í sprettþrautinni. Sömu greinar verða þreyttar í fjölskylduþríþrautinni sem hefst klukkan 12.30 en vegalengdir eru styttri. Keppt verður í 200 metra sundi, 5 km hjólreiðum og 2 km hlaupi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024