JS Campers
JS Campers

Íþróttir

Suðurnesjastúlkur gera það gott í golfinu
Zuzanna, Karen og Kinga með verðlaun sín á lokahófi GSÍ.
Miðvikudagur 1. október 2014 kl. 11:27

Suðurnesjastúlkur gera það gott í golfinu

Systurnar Kinga og Zuzanna hjá Golfklúbbi Suðurnesja, voru í tveimur efstu sætunum á stigalista Íslandsbankamótaraðarinnar í golfi í stelpuflokki, 14 ára og yngri. Kinga sigraði á þremur mótum og Zuzanna sigraði á tveimur en mótin voru alls sex. Kinga fagnaði m.a. Íslandsmeistaratitlinum í holukeppni og varð stigameistari.

Karen Guðnadóttir hjá GS varð svo stigameistari á Eimskipsmótaröðinni í golfi í fyrsta sinn á ferlinum. Hún lék einnig til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024