Íþróttir

Suðurnesjamenn í fantaformi
Mánudagur 29. október 2018 kl. 09:54

Suðurnesjamenn í fantaformi

Unnu til fjölda verðlauna á Þrekmótaröðinni

Suðurnesjamenn áttu góðu gengi að fagna á Haustmóti Þrekmótaraðarinnar sem haldið var um helgina. Kristjana Hildur Gunnarsdóttir frá líkamsræktarstöðinni Lífsstíl sigraði í einstaklingskeppni kvenna bæði í opnum flokki og flokki 40-49 ára. Liðið 5 fræknar frá Lífsstíl varð í 2. sæti í liðakeppni kvenna 39+. Þuríður Þorkelsdóttir frá Lífsstíll sigraði í flokki 50+ í einstaklingskeppni.

Þór Ríkharðsson frá Súperform varð í 2. sæti í flokki 30-39 ára. Super dreamteam frá Súperform varð í 3. sæti í liðakeppni kvenna. Fjölbrautaskóli Suðurnesja tók þátt í liðakeppni framhaldsskólanna og hafnaði í 2. sæti.

Keppt var í hinum ýmsu greinum eins og hjóli, ólympískum lyftingum, kassahoppi, veggjaklifri, framstigi og fleiru í kapp við klukkuna. Alls voru 300 keppendur frá 15 mismunandi stöðvum sem tóku þátt. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024