Íþróttir

Snyrtivörur úr gulrótum og kolsýrt drykkjarvatn úr sjó
Urta Islandica í Reykjanesbæ er meðal tíu aðila í Til sjávar og sveita.
Mánudagur 11. mars 2019 kl. 10:50

Snyrtivörur úr gulrótum og kolsýrt drykkjarvatn úr sjó

Framsæknar og djarfar nýjungar í landbúnaði og sjávarútvegi

Nú er orðið ljóst hvaða tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í Til sjávar og sveita, fyrsta viðskiptahraðlinum á Íslandi sem einblínir á nýjar lausnir og sjálfbæra verðmætasköpun í landbúnaði og sjávarútvegi. Markmiðið með hraðlinum er að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrirtækja í þessum grunnatvinnugreinum Íslendinga. Verkefninu er þannig ætlað að veita þátttakendum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd fæðist þar til viðskipti taka að blómstra. 

Til sjávar og sveita er haldinn í fyrsta skipti í ár en yfir sjötíu umsóknir bárust í hraðalinn. Af þessum hópi voru tuttugu umsækjendur teknir í viðtal og hafa tíu teymi nú verið valin til þátttöku úr þessum breiða hópi umsækjenda. Þrjú fyrirtæki vinna að tæknilausnum en hin sjö eru afurðatengd og koma bæði úr landbúnaði og sjávarútvegi. Í níu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa hugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan landbúnaðar og sjávarútvegs og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Icelandic Startups hefur í samstarfi við Íslenska sjávarklasann komið á fót til Sjávar og sveita með fulltingi Ikea á Íslandi, Matarauðs Íslands, Landbúnaðarklasans og HB Granda. Í gegnum þessa bakhjarla fá fyrirtækin aðgang að tengslaneti og fagþekkingu sem á engan sinn líka á Íslandi. Ætlunin er að hraðallinn varpi ljósi á þau tækifæri sem felast í sjálfbærri nýtingu auðlinda á Íslandi. 

Eftirtalin tíu fyrirtæki taka þátt í Til sjávar og sveita 2019: 

ArcanaBio 

Ný háhraða tækni sem útbýr DNA greiningarpróf, allt frá matvælaiðnaði yfir í líftækni 

Álfur Beer 

Bruggar bjór úr kartöfluhýði sem færi annars til spillis

Beauty by Iceland 

Snyrtivörur úr gulrótum og rófum sem færu annars til spillis

Feed The viking 

Sprotafyrirtæki sem starfar með það markmið að auka virði íslenskra matvæla með nýsköpun og öflugri markaðssetningu

Ljótu kartöflurnar 

Framleiðsla á kartöfluflögum úr annars flokks íslensku hráefni sem annars yrði fargað

Stafræn veiðibók 

Færa veiðibókina af pappírnum upp í skýin

Pure Natura 

Framleiðir hágæða íslensk fæðuunnin bætiefni úr lambainnmat og íslenskum jurtum

Tracio 

Næsta kynslóð rekjanleika og upplýsingakerfa sem á nýjan hátt eykur skilvirkni og traust í virðiskeðju matvæla. 

Urtasjór 

Framleiðsla á jurtabragðbættu og kolsýrðu, steinefnaríku drykkjarvatni unnið úr sjó

Æðarkollur 

Fullvinnsla æðardúns á Íslandi