Fréttir

Vilja hjólabrettavöll í Voga
Bæjarráð í Vogum ætlar að kanna kostnað við uppsetningu á hjólabrettavelli í sveitarfélaginu.
Miðvikudagur 15. febrúar 2017 kl. 11:41

Vilja hjólabrettavöll í Voga

Börn og unglingar í Vogum afhentu bæjaryfirvöldum á dögunum undirskriftalista með beiðni um að byggður verði hjólabrettavöllur í bænum. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í morgun. Í fundargerð kemur fram að ráðið þakki fyrir undirskriftalistann og frumkvæði þeirra sem að honum stóðu. Ráðið samþykkir að taka málið til skoðunar og að kannað verði með kostnað og staðsetningu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024