Fréttir

Vefur Reykjanesbæjar einn af fimm bestu vefjum sveitarfélaga landsins
Þriðjudagur 5. desember 2017 kl. 06:00

Vefur Reykjanesbæjar einn af fimm bestu vefjum sveitarfélaga landsins

Vefir Reykjanesbæjar, Akureyrar, Reykjavíkurborgar, Fljótsdalshéraðs og Kópavogs þykja bestu vefir íslenskra sveitarfélaga, en vefir Neytendastofu, Háskóla Íslands, Þjóðskrár Íslands, Stjórnarráðsins og Ríkisskattstjóra eru bestu ríkisvefirnir. Mjótt er á munum þegar allir viðmótsþættir hafa verið skoðaðir, s.s. upplýsingagjöf, þjónusta, þátttaka og aðgengi.

Úttekt á vefjum íslenskra sveitarfélaga, ríkisstofnana, vefjum opinberra hlutafélaga og annarra fyrirtækja undir yfirskriftinni „Hvað er spunnið í opinbera vefi?“ fer fram annað hvert ár. Úttekt gera Sjá viðmótsprófanir ehf. og Svavar Ingi Hermannsson öryggissérfræðingur. Niðurstöður voru kynntar á UT degi Ský, Skýrslutæknifélags Íslands, sem fram fór á Grand Hótel í gær.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í dómnefnd sátu Marta Kristín Lárusdóttir lektor í Háskólanum í Reykjavík, Tinni Sveinsson þróunarstjóri 365 og Margrét Kristín Sigurðardóttir forstöðumaður almannatengsla hjá Samtökum iðnaðarins. Þau fá einungis upplýsingar um hverjir stigahæstu vefirnir eru og útnefna þann besta eftir reynslu af notkun. Þetta kemur fram á heimasíðu Reykjanesbæjar.