Fréttir

Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ ekki ánægðir með breytingar á listanum
Ísak Ernir Kristinsson er efstur þeirra sem búa í Reykjanesbæ á lista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Hann er í 7. sæti.
Mánudagur 19. september 2016 kl. 16:46

Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ ekki ánægðir með breytingar á listanum

Einn fulltrúi úr stærsta byggðarlaginu í Suðurkjördæmi á 20 manna lista og er í 7. sæti

„Ég er ekki sáttur við þessa niðurstöðu og við fulltrúar úr Reykjanesbæ vildum að úrslit prófkjörsins fengju að standa. Við mættum með breytingartillögu en hún fékk heldur ekki hljómgrunn svo við drógum hana til baka. Niðurstaðan var ekki nógu góð fyrir okkur, við missum ráðherra og fáum svo bara einn fulltrúa úr Reykanesbæ á tuttugu manna lista,“ sagði Guðbergur I. Reynisson, formaður sjálfstæðisfélags Reykjanesbæjar en fulltrúaráð flokksins í Suðurkjördæmi lagði fram breytingar á listanum sem voru samþykktar á fundi á Selfossi í gær.

Vitað er að formaðurinn og fleiri vildu að Ísak Kristinsson færðist upp í 5. sæti en hann endaði í 6. sæti í prófkjörinu. Niðurstaðan var sú að hann fékk 7. sætið. Bryndís Einarsdóttir sem endaði í 8. sæti í prófkjörinu fékk ekki sæti á listanum og heldur ekki þeir Kristján Óli Sigmundsson, Árni Johnsen og Oddgeir Á. Ottesen. Guðbergur sagðist einnig hissa á því að Ragnheiði Elínu Árnadóttur hafi ekki verið boðið heiðurssæti á listanum.

List­inn í heild sinni er eft­ir­far­andi:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

1. sæti - Páll Magnús­son fjöl­miðlamaður

2. sæti - Ásmund­ur Friðriks­son alþing­ismaður

3. sæti - Vil­hjálm­ur Árna­son alþing­ismaður

4. sæti - Unn­ur Brá Kon­ráðsdótt­ir alþing­ismaður

5. sæti - Krist­ín Trausta­dótt­ir end­ur­skoðandi

6. sæti - Hólm­fríður Erna Kjart­ans­dótt­ir, skrif­stofu­störf

7. sæti - Ísak Ernir Krist­ins­son deild­ar­stjóri

8. sæti - Brynj­ólf­ur Magnús­son lög­fræðing­ur

9. sæti - Lovísa Rósa Bjarna­dótt­ir fram­kvæmda­stjóri

10. sæti - Jarl Sig­ur­geirs­son tón­list­ar­kenn­ari

11. sæti - Lauf­ey Sif Lár­us­dótt­ir um­hverf­is­skipu­lags­fræðing­ur

12. sæti - Jón Bjarna­son bóndi

13. sæti - Hjör­dís Guðrún Brynj­ars­dótt­ir sjúkraþjálf­ari

14. sæti - Bjarki V. Guðna­son sjúkra­flutn­ingamaður

15. sæti - Helga Þórey Rún­ars­dótt­ir leik­skóla­kenn­ari

16. sæti - Þorkell Ingi Sig­urðsson fram­halds­skóla­nemi

17. sæti - Ragn­heiður Perla Hjalta­dótt­ir hjúkr­un­ar­nemi

18. sæti - Alda Agnes Gylfa­dótt­ir fram­kvæmda­stjóri

19. sæti - Sandra Ísleifs­dótt­ir hús­móðir

20. sæti - Geir Jón Þóris­son, fyrr­ver­andi lög­reglumaður

Páll Magnússon, oddviti með samstarfsfólki sínu eftir breytingarnar á listanum.