Fréttir

Handtekinn eftir 154 símtöl í Neyðarlínuna
Föstudagur 21. apríl 2017 kl. 15:00

Handtekinn eftir 154 símtöl í Neyðarlínuna

Ölvaður einstaklingur hringdi að tilefnislausu vel á annað hundrað símtöl til neyðarlínunnar 112 á einum sólarhring í vikunni. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum segir að embættinu hafi verið gert viðvart um háttsemi hans þegar hann hafði hringt 100 símtöl og fóru lögreglumenn á heimili hans og ræddu við hann um alvarleika þess athæfis að hefta línur neyðarlínunnar. Ekki dugði það til því að eftir það hringdi hann samtals 54 símtöl í 112. Þegar lögreglumenn fóru heim til hans í fjórða sinn brást hann illa við með æsingi og ógnandi framkomu. Hann var því handtekinn og vistaður í fangaklefa meðan áfengisvíman var að renna af honum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024