Aðsent

Forvörn gegn fíkniefnum - Fyrirlestur í Njarðvíkurskóla
Þriðjudagur 29. janúar 2019 kl. 10:47

Forvörn gegn fíkniefnum - Fyrirlestur í Njarðvíkurskóla

Njarðvíkurskóli fékk styrk frá Forvarnarsjóði Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar fyrir fyrirlestrum frá Hildi Hólmfríði Pálsdóttur.
 
Hildur byggir fyrirlestrana sína á sögu dóttur sinnar sem lést vegna neyslu lyfja fyrir nokkrum árum
síðan. Hún segir sögu hennar og er svo með umræður á eftir þar sem nemendur/forráðamenn geta spurt að hverju sem er.
 
Með fyrirlestrinum segir hún sögu dóttur sinnar sem sökk mjög fljótt í djúpt fen fíkniefnaneyslu. Hún var farin að sprauta sig um fimmtán ára aldur og hafði farið nokkrum sinnum í meðferð þegar hún lést. Í sínum fyrirlestrum er Hildur opinská og dregur ekkert undan þegar hún lýsir því hvernig það getur endað þegar byrjað er að fikta með eiturlyf og hversu fljótt það getur gerst.
 
Hildur mun halda fjóra fyrirlestra sem allir verða miðvikudaginn 30. janúar. 
- 10. bekkur kl. 08:30
- 9. bekkur kl. 10:00 
- 8. bekkur kl. 11:00 
- Fyrir forráðamenn kl. 17:30 á sal Njarðvíkurskóla – opið fyrir alla forráðamenn og starfsmenn í Njarðvíkurskóla.
 
Allir forráðamenn í Njarðvíkurskóla eru hvattir til að mæta kl. 17:30 á sal skólans.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024