Viðskipti

Stofnfiskur hf breytir nafni sínu
Mánudagur 25. janúar 2021 kl. 09:36

Stofnfiskur hf breytir nafni sínu

- verður Benchmark Genetics Iceland hf.

Frá og með 19. janúar breytti Stofnfiskur hf. nafni sínu í Benchmark Genetics Iceland hf. Nafnabreytingin er liður í því að sameina vörumerki innan móðurfélagsins Benchmark Holding plc group. Nafnið Stofnfiskur verður áfram notað fyrir laxastofn fyrirtækisins svo og kynbótaverkefni þess á laxi sem starfrækt er á Íslandi.

Nýr áfangi í langri sögu

Benchmark Genetics Iceland var stofnað árið 1991 og hefur verið rótgróinn og traustur framleiðandi á kynbættum laxahrognum til laxeldisiðnaðarins á Íslandi svo og allri Evrópu og Chile. Starfsemi fyrirtækisins er staðsett á suðvesturlandi, klakeldisstöðvar við Kalmanstjörn sunnan við Hafnir og í Vogum þar sem einnig hrognaframleiðsla fyrirtækisins fer fram. Seiðastöðin er staðsett í Kollafirði. Fyrirtækið framleiðir einnig hrognkelsaseiði í stöð sinni í Höfnum, sem eru notuð til að halda laxalús niðri í laxeldi í sjó. Benchmark Genetics Iceland flutti í nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar í byrjun árs að Bæjarhrauni 14 í Hafnarfirði.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nafnabreytingin er nýr áfangi í sögu fyrirtækisins og fylgir eftir yfirtöku breska fyrirtækisins Benchmark Holding plc frá árinu 2014. Þrátt fyrir að nafn fyrirtækisins hafi breyst er kennitalan, skipulag fyrirtækisins svo og eignarhald óbreytt.

Jónas Jónasson, framkvæmdarstjóri Benchmark Genetics Iceland segir: „Þetta skref er hluti af stefnu Benchmark við uppbyggingu á sterku og sameinuðu vörumerki félagsins.

Við munum ennþá halda í Stofnfisks nafnið fyrir laxastofninn okkar sem við framleiðum hér á Íslandi þar sem að við vitum að það skiptir miklu máli fyrir okkar viðskiptavini” segir Jónas einnig.

Uppbygging til framtíðar

Benchmark Genetics Iceland heldur áfram að vaxa og framundan eru miklar fjárfestingar í áframhaldandi uppbyggingu á starfsemi félagsins á Íslandi. Verið er að byggja nýtt hrognahús við stöð okkar í Vogavík sem verður tilbúin seinna á þessu ári. Samhliða því verður einnig farið í byggingu á nýrri seiðastöð á sama svæði. Jónas segir einnig: „Ég er spenntur að leiða fyrirtækið inn í þetta nýja tímabil vaxtar og þróunar. Nafnabreytingin er tákn um þau skref sem við höfum tekið í aukningu á framleiðslu og nýsköpun síðan við sameinuðumst Benchmark í nóvember 2014.

Núna erum við spennt að klára framkvæmdir við nýtt hrognahús sem verður tilbúið í júní á þessu ári. Stöðin verður útbúin með nýjustu tækni og mun gera okkur kleift að auka framleiðsluna allan ársins hring á hrognum til viðskiptavini okkar um allan heim. Þar á meðal nýju laxeldisfyrirtækin í landeldi sem er í mikilli sókn í heiminum,” segir Jónas að lokum.

Jónas Jónasson, framkvæmdarstjóri Benchmark Genetics Iceland.