Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

PLAY til Boston og Washington D.C.
Fimmtudagur 16. desember 2021 kl. 15:08

PLAY til Boston og Washington D.C.

Flugfélagið PLAY hefur í dag miðasölu á flugi til Boston og Washington D.C. í Bandaríkjunum. Fyrsta flug PLAY til Washington verður 20. apríl á næsta ári og 11. maí til Boston. PLAY mun fljúga til Logan flugvallar í Boston og Baltimore/Washington International flugvallar á milli Baltimore og Washington D.C. PLAY hefur fengið öll tilskilin leyfi til að hefja flug til Bandaríkjanna frá bandarískum flugmálayfirvöldum.

Þessi áfangi er afar þýðingarmikill fyrir PLAY því nú tekur við næsti kafli í sögu félagsins með því að bæta við tengifarþegum yfir Atlantshafið og stækka markaðssvæði PLAY. Í vor verður hægt að fljúga með tengiflugi á milli áfangastaða í Bandaríkjunum, og Parísar, Berlínar, London, Kaupmannahafnar, Dublin, Brussel, Stafangurs, Þrándheims og Gautaborgar í Evrópu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Með tilkomu Boston og Washington D.C. mun PLAY fljúga til 24 áfangastaða í Bandaríkjunum og Evrópu á næsta ári en til viðbótar við fyrrgreinda áfangastaði flýgur PLAY til Alicante, Amsterdam, Barcelona, Bologna, Gran Canaria, Lissabon, Madríd, Malaga, Mallorca, Prag, Salsburg, Stuttgart og Tenerife.

PLAY mun notast við sex nýjar Airbus A320neo og A321neo flugvélar næsta sumar. Airbus A320 fjölskyldan hentar rekstri PLAY sérstaklega vel. Stærð og drægni vélanna gera PLAY kleift að þjónusta stærri og minni markaði, nær og fjær, og þá eru þær sparneytnar á eldsneyti.

„Það er hreint út sagt magnað að horfa upp á árangur PLAY nú þegar við höfum náð markmiði okkar um að hefja sölu á flugi til Bandaríkjanna. Síðustu mánuðir hafa verið virkilega krefjandi á þessum óvissutímum sem stafa af kórónuveirufaraldrinum og við værum aldrei komin á þennan stað nema með ótrúlegu baráttuþreki starfsfólks PLAY sem hefur aldrei látið deigan síga. Þá er ég afskaplega stoltur af því að áætlanir um stækkun leiðakerfis okkar hafi gengið upp í þessu árferði. Árangurinn er öflugt flugfélag sem mun bjóða Íslendingum ódýrari valkost í flugi til Bandaríkjanna. Við finnum fyrir miklum ferðahug, bæði hér á landi og erlendis, en kannanir sýna að tveir þriðju Bandaríkjamanna eru að skipuleggja næsta frí með erlenda áfangastaði efst í huga. Nú getum við loksins boðið flug til og frá Boston og Washington D.C. þannig að ferðalangar geta komist til Íslands og yfir Atlantshafið á viðráðanlegu verði og notið dvalarinnar á áfangastað án þess að þurfa eyða of miklu til að komast þangað,“ segir Birgir Jónsson forstjóri PLAY.