Viðskipti

Kolefnishlutleysi Algalífs alþjóðlega vottað
Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.
Föstudagur 28. janúar 2022 kl. 07:29

Kolefnishlutleysi Algalífs alþjóðlega vottað

Líftæknifyrirtækið Algalíf er nú vottað kolefnishlutlaust í samræmi við umhverfisstefnu fyrirtækisins sem kynnt var í fyrra. Vottunin er hluti af áralangri vegferð Algalífs til sjálfbærni. 

„Jafnvel þótt við séum í grunnin eitt af grænustu fyrirtækjum landsins, þá liggur talsverð vinna í því að fá jafn virta alþjóðlega vottun,“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs. „En við teljum það ekki eftir okkur, því orðum um samfélagsábyrgð og græna framtíð verða að fylgja aðgerðir." 

Algalif valdi vottunina frá CarbonNeutral® vegna þess hversu virt og áreiðanleg hún er. Meðal annarra alþjóðlegra fyrirtækja með þessa vottun eru tæknifyrirtækin Microsoft og Logitech, og fjölmiðlarisinn Sky.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við erum öll stolt af því að vera grænt fyrirtæki sem leggur sitt af mörkum til að leysa þann umhverfisvanda sem að steðjar,“ segir Orri. „Með því sýnum við ábyrgð og virðingu okkar fyrir landinu, samfélaginu og samborgurum okkar.“

Algalíf framleiðir plöntuþörunga með ljóstillifun í hátæknilegu rörakerfi þar sem öllum umhverfisþáttum er stýrt nákvæmlega. Helstu aðföng til framleiðslunnar eru hreint vatn og græn raforka úr jarðvarma fyrir gróðurljós af nýjustu gerð. 

Algalíf er í fararbroddi í umhverfismálum. Öll ökutæki félagsins eru græn, aðföng eru umhverfisvottuð og rekin er víðtæk sorplágmörkunarstefna. Algalíf notar ekkert jarðefnaeldsneyti við framleiðslu sína. 

Núverandi húsnæði Algalífs að Ásbrú í Reykjanesbæ er 5.500 m² en verið er að byggja 7.000 m² nýbyggingu við hlið núverandi framleiðsluhúsnæðis. Hjá Algalíf vinna nú um 50 manns en verða um 80 þegar allt verður komið á fullan skrið í báðum byggingum á næsta ári. 

Algalíf hefur hlotið fjölda innlendra og alþjóðlegra viðurkenninga á sviði líftækni, nýsköpunar, umhverfismála og rekstrar. Þá hefur Orri Björnsson, forstjóri Algalífs, hlotið margvíslegan heiður fyrir að hafa leitt uppbyggingu fyrirtækisins frá upphafi.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, og Orri Björnsson, forstjóri Algalífs, við afhendingu Vaxtasprotans.

Vefsíða Carbonneutral®: www.carbonneutral.com
Vefsíða Algalífs: www.algalif.com