Viðskipti

Kapalvæðing býður þjónustu um Ljósleiðara Gagnaveita Reykjavíkur
Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur og Börkur Birgisson, framkvæmdastjóri Kapalvæðingar við undirritun samnings fyrirtækjanna.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. október 2020 kl. 10:47

Kapalvæðing býður þjónustu um Ljósleiðara Gagnaveita Reykjavíkur

Kapalvæðing og Gagnaveita Reykjavíkur (GR) hafa undirritað samkomulag þess efnis að Kapalvæðing leigi aðgang að ljósleiðarakerfi GR um opið net félagsins. Með samningnum mun Kapalvæðing geta aukið þjónustu og bandvídd við viðskiptavini sína á Reykjanesi yfir ljósleiðaranet GR.  Unnið er að tæknilegum undirbúningi og er stefnt að því að þjónusta Kapalvæðingar verði aðgengileg á ljósleiðara GR á næstu vikum.

„Við fögnum þessum samning við Gagnaveituna en með honum munum við geta boðið þjónustu okkar til allra heimila sem ljósleiðarakerfi GR nær til. Þetta er stórt skref fyrir okkur þar sem við höfum ekki nýtt önnur ljósleiðarakerfi en okkar eigin og býður samningurinn okkur upp á nýja möguleika í þjónustu. Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum.“ segir Börkur Birgisson, framkvæmdastjóri Kapalvæðingar.

Public deli
Public deli

„Við höfum unnið að því að leggja ljósleiðara í Reykjanesbæ undanfarið og sjáum fram á að ljúka því verkefni á næstu árum og því fögnum við því að fá Kapalvæðingu inn á kerfið okkar. Það er sérstaklega spennandi þar sem fyrirtækið er uppbyggt í Reykjanesbæ og starfsemin er þar. Þjónusta Kapalvæðingar verður í kjölfarið í boði á ljósleiðarakerfi GR sem mun ná til um 107 þúsund heimila í lok árs og eykur val neytenda. Samningurinn ýtir undir stefnu stjórnvalda um að Ísland verði áfram framarlega í notkun á ljósleiðara og tökum við fagnandi á móti nýjum þjónustuaðila á Ljósleiðaranum.“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.

Upplýsingar um þjónustu Kapalvæðingar er að finna á www.kv.is.