Viðskipti

Gunnar Egill er nýr forstjóri Samkaupa - Ómar hættir eftir 26 ár
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
föstudaginn 4. mars 2022 kl. 14:38

Gunnar Egill er nýr forstjóri Samkaupa - Ómar hættir eftir 26 ár

Ómar Valdimarsson, sem verið hefur forstjóri Samkaupa undanfarin 13 ár, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Gunnar Egill Sigurðsson tekur við starfi forstjóra en hann hefur starfað hjá Samkaupum í 20 ár, nú síðast sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs.

Forstjóraskiptin munu eiga sér stað um mánaðamótin mars – apríl, í kjölfar kynningu ársuppgjörs síðasta árs sem var afar gott í rekstri fyrirtækisins þrátt fyrir miklar áskoranir síðustu ára vegna heimsfaraldursins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ómar hefur starfað í 26 ár sem stjórnandi hjá Samkaupum, þar af sem forstjóri fyrirtækisins í 13 ár eða frá árinu 2009. Hann hefur stýrt fyrirtækinu í gegnum mikla umbreytingu og vöxt, ekki síst með aukinni sókn á höfuðborgarsvæðinu. Í dag eru verslanir fyrirtækisins á 65 stöðum á landinu og fyrirtækið veltir ríflega 40 milljörðum króna. Þá er framundan opnun 66. verslunarinnar, en í dag var undirritaður leigusamningur fyrir nýja Nettó verslun sem verður sú níunda á höfuðborgarsvæðinu.

Skúli Skúlason, stjórnarformaður Samkaupa: „Við viljum þakka Ómari fyrir einstakt framlag hans til vaxtar og viðgangs Samkaupa á síðustu árum. Það vita allir sem þekkja til hans starfa hversu stórt hlutverk hann hefur leikið í að búa til gott fyrirtæki og góðan vinnustað sem að stór hluti þjóðarinnar er verslar við, í hverri viku. Að sama skapi er ég feikilega ánægður með ráðningu Gunnars Egills, sem þekkir fyrirtækið afar vel og mun um leið koma með ferskar áherslur inn í þau stóru verkefni sem framundan eru hjá Samkaupum.“

Gunnar Egill Sigurðsson, verðandi forstjóri Samkaupa: „Það er spennandi vegferð framundan. Ég hlakka til að fylgja eftir stafrænni þróun og sjálfvirknivæðingu í þjónustu og starfsemi Samkaupa. Þá vil ég auka enn frekar áherslur okkar á samfélagslega ábyrgð og halda áfram að gera Samkaup að frábærum vinnustað.“

Um Samkaup: 

Samkaup reka verslanir víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Nettó, Krambúðin, Kjörbúðin og Iceland. Alls starfa 1.500 manns hjá fyrirtækinu í fullu starfi eða hlutastarfi. Fyrirtækið rekur undir vörumerki Nettó stærstu vefverslun landsins með matvörur, miðað við fjölda vörunúmera, en í henni má finna yfir 6.000 ólíkar vörur í heimsendingu. Þess má geta að um 40.000 manns sóttu app fyrirtækisins í fyrsta sinn í fyrra, en það veitir inneign í takt við veltu. Nánari upplýsingar um stjórnendur má finna hér: https://www.samkaup.is/um-samkaup/stjorn/