Viðskipti

Farþegum fjölgar en óvissa áfram vegna aðgerða á landamærum
Þriðjudagur 7. september 2021 kl. 17:59

Farþegum fjölgar en óvissa áfram vegna aðgerða á landamærum

Nærri 900 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í sumar. Enn er þó töluvert í að umferðin nálgist þann fjölda sem ferðaðist um flugvöllinn árið 2019, fyrir Covid-19 faraldurinn. Þá fóru tæplega 2,5 milljónir farþega til og frá Keflavíkurflugvelli í júní, júlí og ágúst það ár.

„Það eru þó blikur á lofti,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia í tilkynningu. „Sætanýting hefur verið stigvaxandi framan af í sumar en við sjáum að það er farið að draga úr eftirspurn. Það er erfitt að draga aðra ályktun en þá að þarna séum við að sjá beina afleiðingu af hörðum, viðvarandi og síbreytilegum sóttvarnaraðgerðum á landamærunum.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Flugfélög um allan heim hafa á síðustu vikum verið að leggja lokahönd á áætlanir sínar fyrir komandi vetur og næsta ár.

„Það eru 15 flugfélög sem ætla að fljúga um Keflavíkurflugvöll í vetur eins og horfurnar eru núna,“ segir Guðmundur Daði. „Það getur hæglega breyst, m.a. ef aðgerðir á íslensku landamærunum verða áfram harðari en annars staðar og þar af leiðandi harðari en á flugvöllum sem við erum helst í samkeppni við. Þessu til viðbótar benda samtöl okkar við talsmenn flugfélaga til þess að takmarkanir á landamærum dragi úr ferðavilja fólks og það hefur áhrif á áfangastaðinn Ísland.“

Guðmundur Daði bendir á að 17 flugfélög hafi flogið um Keflavíkurflugvöll veturinn 2019/2020. Fjöldi áætlaðra félaga í vetur sé nokkuð nærri því. „Ísland er í dauðafæri að vinna sig hratt út úr efnahagslægð faraldursins en þá þarf að halda rétt á spöðunum. Flugtengingar eru mikilvægar fyrir hagkerfið allt og þær gætu tapast.“