Viðskipti

Bjóða 50.000 krónur fyrir nafn á verslun
Þriðjudagur 7. febrúar 2023 kl. 08:39

Bjóða 50.000 krónur fyrir nafn á verslun

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga tekur undir bókun bæjarráðs og fagnar því að tekist hafi samningar við Grocery Market ehf. um rekstur matvöruverslunar í Vogum um leið og við óskar nýjum rekstraraðilum góðs gengis. Tillaga að bókun þess efnis var samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.

Eins og greint var frá í síðasta blaði hefur sveitarfélagið gert samning við fyrirtækið Grocery Store ehf. um leigu á verslunarrými í Iðndal 2 en þar hyggst fyrirtækið hefja rekstur matvöruverslunar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eigendur Grocery Store ehf. hafa yfir tíu ára reynslu af rekstri matvöruverslana og reka fimm matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu og eina á Akranesi. Stefnt er að opnun verslunarinnar í febrúarmánuði. Opnunartími verður frá klukkan 11 til 19 mánudag til laugardags og 11–17 á sunnudögum.

Á vef sveitarfélagsins segir að ekki er búið að ákveða nafn á hina nýju verslun og ætla rekstraraðilarnir að efna til nafnasamkeppni. Nafnasamkeppnin er öllum opin og íbúar eru hvattir til að taka þátt. Frestur til að skila inn tillögum að nafni er til og með 14. febrúar næstkomandi og skulu þær berast á netfangið [email protected]

Í verðlaun fyrir bestu hugmyndina er 50 þúsund króna gjafabréf í nýju versluninni.