Mannlíf

Viljum að Eiríks­salur verði fjölnota menningarsalur fyrir bæjarbúa
Marta Eiríksdóttir
Marta Eiríksdóttir skrifar
laugardaginn 11. janúar 2020 kl. 07:19

Viljum að Eiríks­salur verði fjölnota menningarsalur fyrir bæjarbúa

Hver man ekki eftir Aðalveri, salnum uppi fyrir ofan Aðalstöðina í Keflavík, sem var leigubílastöð á árum áður? Undirrituð man eftir að hafa labbað upp tröppurnar og inn í sal, til þess að fara í djassballett í Aðalveri hjá Iben Sonne sem var dönsk. Fleiri af eldri kynslóðinni muna sjálfsagt einnig eftir jólaböllunum sem haldin voru í Aðalveri, þegar börnin dönsuðu þar í kringum jólatréð og sungu hástöfum til að jólasveinninn mætti á svæðið með ávexti í poka og fengu örlítinn sælgætispoka einnig ef þau voru heppin. Þarna var dansað og haldnar árshátíðir. Fíni, stóri barinn var vinstra megin við dyrnar þegar komið var inn.

Allt rifjast þetta upp þegar blaðakona Víkurfrétta gekk upp tröppurnar um daginn og átti stefnumót við Díönu Karen Rúnarsdóttur, 27 ára gamla framkvæmdastýru Eiríkssalar og Orange Streetfood. Díana ólst upp í Keflavík og er elsta dóttir Rúnars Eiríkssonar, fiskverkanda í Garði, og Heiðbráar Steinþórsdóttur sem eiga reksturinn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fullt af hugmyndum í gangi

„Pabbi minn hefur alltaf verið rosalega duglegur að koma hlutum í framkvæmd og fær trilljón hugmyndir á dag um hvað væri hægt að gera skemmtilegt. Pabbi vissi alltaf af mér á hliðarlínunni ef hann skyldi fara út í rekstur sem ég gæti hjálpað honum eitthvað með. Í sumar ákvað hann svo að kaupa rekstur Orange Streetfood á Hafnargötu 86 og bauð mér að sjá alfarið um daglegan rekstur. Ég ákvað að slá til og sagði upp þáverandi starfi mínu sem forstöðumaður á frístundaheimili. Ég hef alltaf litið upp til pabba og ég fæ það frá honum að elska að takast á við krefjandi verkefni,“ segir Díana.

Girnilegur matseðill

„Í júní fengum við staðinn afhentan og breyttum við áherslum í rekstri hans strax í upphafi, einfölduðum matseðilinn, breyttum ásýndinni á veitingasalnum ásamt því að skipta út vörumerkinu. Við leggjum upp úr því að hafa staðinn lítinn og kósý og veita góða, vingjarnlega þjónustu. Svínarifin hjá okkur eru reykt á staðnum og eru með vinsælli réttum en við erum með sérstakan reykofn sem við notum við matreiðslu þeirra, sem gefur mjög gott bragð. Við erum einnig með sérstakan hamborgara sem heitir „Orange Special“ ásamt fullt af öðrum gómsætum hamborgurum. Þetta eru einstaklega djúsí borgarar. Einn þeirra er til að mynda með Camembert, piparosti og rifsberjasultu en hann er gríðarlega vinsæll. Við viljum bjóða upp á girnilegan matseðil sem er öðruvísi en þú færð annars staðar og erum einnig með vegan-borgara sem er mjög vinsæll. Við erum mjög ánægð með matseðilinn okkar því við sjáum að fólki líkar hann vel. Bílalúgan okkar er líka hentug fyrir þá sem eru á ferðinni en það er hægt að gera boð á undan sér með því að hringja og panta mat þannig að hann sé klár þegar þú kemur og sækir í lúguna,“ segir Díana.

Frábærar móttökur

„Við erum mjög þakklát fyrir móttökurnar á Orange Streetfood. Þetta er búið að vera ótrúlega krefjandi og skemmtilegt og ég er búin að læra heilmikið frá því við tókum við staðnum í sumar. Ég hugsa alltaf út frá því hvernig ég myndi sjálf vilja upplifa svona veitingastað. Framúrskarandi þjónusta er góður grunnur til að byggja á. Daníel, maðurinn minn, hefur verið mér til aðstoðar en hann til dæmis bjó til heimasíðuna og sá um allt þetta tæknilega í kringum reksturinn, þar er hann góður þannig við smellum ágætlega saman. Ég hafði ofboðslega gaman af að hanna útlit staðarins og hugsa út í hvernig viðskiptavinirnir upplifa hann.“

Gamli tíminn og nýi tíminn

„Efri hæðin, sem hýsti áður skrifstofur Aðalstöðvarinnar, hafði staðið að mestu auð í tuttugu ár. Við pabbi höfðum auga með henni og þegar við lukum við framkvæmdirnar á veitingastaðnum í sumar ákváðum við að ræða við eigendur hússins. Við náðum samkomulagi um leiguna og þeir afhentu okkur lyklana og sögðu okkur að við mættum gera það sem við vildum. Það þurfti heilmikið að gera, skipta um rafmagn, gólfefni og fleira. Það tók okkur sex vikur að rífa niður veggi og endurnýja efri hæðina því við vildum búa til eitt stórt rými eins og áður var. Það hafa margir bent okkur á að þessi salur hafi einu sinni heitið Aðalver og við kynntum okkur söguna. Við vorum að spá í það nafn en svo var ákveðið að heiðra minningu afa míns sem hét Eiríkur og þaðan er nafnið Eiríkssalur komið. Þegar við vorum að gera upp efri hæðina ákváðum við að halda í gamla stílinn þar sem hægt var, eins og stigagangurinn sem er alveg eins og fólk man eftir honum. Gamlar ljósmyndir úr Aðalveri eiga eftir að prýða salinn en við erum að vinna í því núna að útvega þessar gömlu myndir sem eru til,“ segir Díana og brosir.

Veisla í Aðalveri árið 1963.

Eiríkssalur nýtist í svo margt

„Við erum búin að endurnýja salinn en það hefði aldrei verið hægt hægt án pabba og hans teymis. Hann vann nótt sem nýtan dag við það að koma salnum í stand og fengum við einnig ómetanlega hjálp frá mörgum góðum aðilum. Eiríkssalur er veislusalur sem hægt er að leigja fyrir ýmis konar viðburði ásamt því að hægt er að kaupa veitingar frá Orange Streetfood í veisluna. Við getum að auki útvegað þjónustufólk í veisluna ef þarf. Við erum búin að bóka töluvert inn í nýja árið 2020, meðal annars fyrir fermingarveislur, og erum einnig að fá fyrirspurnir um bókanir árið 2021. Við getum boðið félagasamtökum og klúbbum að halda fundi sína hér í Eiríkssal. Við komum síðan sjálf til með að bjóða upp á viðburði sem lífga upp á bæjarstemninguna. Við viljum að Eiríks­salur verði fjölnota menningarsalur fyrir bæjarbúa sem langar að gera eitthvað skemmtilegt og skapa líf í bænum á sama tíma. Fleiri hugmyndir eru að spretta fram núna og svo þróast þetta smátt og smátt. Við erum rosa spennt að byrja nýtt ár og sjá hvernig fólkið á Suðurnesjum ætlar að nýta Eiríkssal, sér og öðrum til skemmtunar,“ segir Díana að lokum kampakát.

Virðulegir og veglegir leigubílar á Aðalstöðvarplaninu fyrir 60-70 árum.

Teikning af Aðalstöðinni í gamla daga en tvær minni sjoppur voru þá einnig reknar, önnur neðarlega á Hafnargötunni í Keflavík og hin á Keflavíkurflugvelli, rétt hjá gömlu flugstöðinni.

Rúnar, Díana, Daníel og Heiðbrá.