Mannlíf

Uppvakningar Reykjanesbæjar besta stuttmyndin
Sigurvegararnir
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
miðvikudaginn 28. desember 2022 kl. 15:39

Uppvakningar Reykjanesbæjar besta stuttmyndin

Nemendur í 9. bekk Akurskóla báru sigur úr býtum í stuttmyndasamkeppni grunnskóla Reykjanesbæjar í tengslum við lestrarupplifunina Skólaslit 2: Dauð viðvörun. Nemendum á unglingastigi bauðst að taka þátt í keppninni og tóku þrír skólar þátt að þessu sinni en nemendur Akurskóla, Holtaskóla og Háaleitisskóla sendu inn stuttmyndir. 

Nemendur nýttu nóvembermánuð til að vinna myndirnar, skrifa handrit, skipuleggja tökur og framkvæmd. Keppnin fór fram þann 12. desember sl. í stóra sal Sambíóanna í Keflavík fyrir fullum sal af nemendum sem skemmtu sér konunglega enda myndirnar frábærar, vel gerðar og skemmtilegar. Kynnar hátíðarinnar voru þau Betsý Ásta Stefánsdóttir og Daníel Örn Gunnarsson. Dómnefndina skipuðu fulltrúar frá Fjörheimum og tilkynnti Ólafur Bergur Ólafsson formaður dómnefndar úrslitin. Þær Sóley Guðjónsdóttir, Alexandra Rós Þorkelsdóttir, Julia Blasik og Thelma Lind Kolbeinsdóttir, úr 9. bekk Akurskóla, stóðu uppi sem sigurvegarar keppninnar með myndina Uppvakningar Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024