Mannlíf

Tríóið DJÄSS í Duus safnahúsum
Mánudagur 16. maí 2022 kl. 11:01

Tríóið DJÄSS í Duus safnahúsum

Tríóið DJÄSS heldur áfram tónleikaferðalagi sínu um landið og nú er röðin komin að Reykjanesbæ. Tónleikar í Bíósalnum í Duus-safnahúsum verða fimmtudaginn 19. maí kl. 20:00 en þessi tónleikaröð trósíns endar síðan á Jazz Baltica hátíðinni í Þýskalandi þann 25. júní.

Tríóið hefur skapað sér nafn og sérstöðu á íslensku tónlistarsenunni með skemmtilegum og frumlegum útsetningum á íslenskum rokk-, pönk- og dægurlögum. Árið 2011 kom út platan Songs from the top of the world sem náði gífurlegum vinsældum og er enn að seljast. We ride Polar Bears kom út árið 2015 og var beint framhald af fyrri plötunni og hlaut einnig mjög góðar viðtökur. Þar mátti þó einnig heyra frumsamin lög og þekkt erlend lög en á plötunni DJÄSS, sem nýlega kom út, eru eingöngu frumsamin lög.

Á efnisskrá tónleikanna munu lög af seinustu plötu þeirra félaga verða nokkuð áberandi en einnig hljóma lög af fyrri plötum sem og nýtt efni sem ekki hefur heyrst á tónleikum hjá þeim áður.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er miðasala við innganginn. Verð aðgöngumiða er 3.000,- og posi er á staðnum

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Tríóið DJÄSS – www.djass.com
Karl Olgeirsson, píanó.
Jón Rafnsson, bassi.
Kristinn Snær Agnarsson, trommur.